Vill Norðlingaölduveitu í nýtingarflokk 14. maí 2012 17:40 Frá stíflustæði við Norðlingaöldu 7 km neðan Þjórsárvera.
Landsvirkjun býðst til að hafa rennslisstýringu á Dynk og öðrum fossum í Efri-Þjórsá til að halda ásýnd þeirra og telur mikilvægt að Norðlingaölduveita verði tekin úr verndarflokki rammaáætlunar. Margir setja fossinn Dynk á stall með Gullfossi og Dettifossi en hann er í Efri-Þjórsá og utan alfaraleiða. Neðar í ánni er Gljúfurleitarfoss, ekki síður magnaður í einu falli, en efstur er Kjálkaversfoss. Með svokallaðri Kvíslaveitu fyrir þrjátíu árum er þegar búið að virkja um 40 prósent af rennsli þessara þriggja fossa en Landsvirkjun vill fá 30 prósent til viðbótar með stíflu við Norðlingaöldu, og dæla þaðan vatninu yfir til Þórisvatns, sem myndi auka raforkuframleiðslu fjögurra virkjana fyrir neðan; við Vatnsfell, Sigöldu, Hrauneyjar og Búðarháls. Ríkisstjórnin vill hins vegar slá Norðlingaölduveitu af og hefur sett hana í verndarflokk rammaáætlunar með þeim rökum að hún raski lítt snortnu svæði í jaðri Þjórsárvera og hafi áhrif á fossana. Landsvirkjun segir á móti í umsögn til atvinnuveganefndar Alþingis mjög mikilvægt að Norðlingaölduveita fari í nýtingarflokk. Bent er á að stíflan verði sjö kílómetrum neðan friðlandsmarkanna og veitulónið verði í Þjórsárfarvegi á örfoka svæði og feli í sér nánast enga röskun á landi vestan ár. Þá býðst Landsvirkjun til að útfæra hugmyndir um rennslisstýringu þannig að dregið yrði úr áhrifum veitunnar á fossana fyrir neðan. Í greinargerð fyrir sex árum mat Landsvirkjun kostnaðarauka sinn ef fallið yrði frá Norðlingaölduveitu upp á sex til sex og hálfan milljarð króna, sem að núvirði eru um tólf til þrettán milljarðar króna, mest vegna þess að annars yrði að virkja dýrari kosti í staðinn.
Mest lesið Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Innlent Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Innlent Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg Innlent Vegkaflinn þar sem banaslysið varð ekki talinn mjög illa farinn Innlent Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Innlent Bjórinn nú leyfður á vellinum Innlent Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Erlent Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Innlent Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Innlent Hart var barist um kjörbréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður Innlent Fleiri fréttir Jákvæð skref hafi verið tekin í vinnuhópi um málefni Grænlands Forstjóri í beinni, herþotur og bjór á vellinum Stúlkan er fundin Skoða að leigja hótel til að létta undir með bráðamóttökunni Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Hækkuðu gjaldið í skugga stúdentamótmæla Bjórinn nú leyfður á vellinum Íhugar að bjóða fram til varaformanns Sömdu um reglulegar samfarir í ár eftir sambúðarslit Lýsa eftir bíl sem var stolið fyrir utan Landspítalann Rafmagnslaust á Siglufirði Ríkisfjármálaleg tímasprengja, mistök eða tímabært réttlætismál? Átta ára dómur Sigurðar Ragnars staðfestur Vísbendingar um gerviverktöku í geiranum Hálf-íslenskur hermaður hluti af sænsku herflugsveitinni Mikið svifryk þrátt fyrir rykbindingu Blikkuðu í klukkustundir vegna skaddaðs jarðstrengs Samtök atvinnulífsins höfðu betur í Félagsdómi Fékk „hjálp“ frá heilbrigðiseftirlitinu til að velja sig sjálfa Baráttan um formannsembætti Framsóknar Viðbrögð Ölmu mikil vonbrigði Lýsa miklum vonbrigðum með viðbrögð Ölmu Vilja ráðast í breytingar á gamla bandaríska sendiráðinu Segir Jóhann Pál genginn í Epstein-björg Ómar og Þórólfur segja frá flugferðinni með Flosa Vísa í nafnið á fyrsta golfvelli Reykvíkinga við val á nýju götunafni Hart var barist um kjörbréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður Vegkaflinn þar sem banaslysið varð ekki talinn mjög illa farinn Upplausn á Vopnafirði: Starfslok sveitarstjórans, oddviti hættir og rifist á fundum Menntaverðlaun Suðurlands fóru á Hellu Sjá meira