Hefð sem kominn er tími til að breyta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. september 2012 07:00 Laugardalsvöllur 5. september 1998. Guðjón Þórðarson, landsliðsþjálfari og Eyjólfur Sverrisson, fyrirliði, fagna jafntefli við heimsmeistara Frakka.
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta spilar sinn fyrsta leik í undankeppni HM 2014 á föstudagskvöldið þegar Norðmenn koma í heimsókn á Laugardalsvöllinn. Þetta er fyrsti alvöru landsleikur liðsins undir stjórn Lars Lagerbäck en mikil batamerki hafa verið á liðinu síðan að Svíinn tók við því. Nú er að sjá hvort Lagerbäck og strákunum takist að afnema leiðinlega hefð hjá íslenska landsliðinu sem hefur ekki náð í stig í fyrsta heimaleiknum á þessari öld. Í undanförnum sex undankeppnum HM eða EM hefur nefnilega fyrsti heimaleikurinn tapast. Ísland hóf einnig síðustu undankeppni á heimaleik á móti Norðmönnum og lengi vel leit út fyrir að strákunum væri að takast að breyta hefðinni. Heiðar Helguson kom íslenska liðinu í 1-0 á 38. mínútu og Ísland var með undirtökin í fyrri hálfleiknum. Norðmenn skoruðu hins vegar tvö mörk í seinni hálfleik og hirtu öll stigin. Ísland tapaði reyndar fyrstu þremur heimaleikjum sínum í keppninni og stigin komu ekki í hús fyrr en í 1-0 sigri á Kýpur í lokaheimaleiknum sem er einmitt síðasti alvöruleikur strákanna í Laugardalnum. Íslenska liðið náði stigum í fyrsta leik í undankeppni EM 2008 (3-0 sigur á Norður-Írlandi) og HM 2010 (2-2 jafntefli við Noreg) en báðir leikirnir voru á útivelli. Nokkrum dögum síðar var komið að fyrsta heimaleiknum en þeir töpuðust báðir fyrir Dönum (0-2, EM 2008) og Skotlandi (1-2, HM 2010). Það eru nú liðin 14 ár síðan að Íslands fékk eitthvað út úr sínum fyrsta heimaleik í undankeppni eða síðan að liðið gerði 1-1 jafntefli við Frakka undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar 5. september 1998. Væntingar til fyrsta leiks hafa verið mismiklar fyrir undankeppnir landsliðsins á þessari öld en góð spilamennska liðsins í vináttuleikjum undir stjórn Lars Lagerbäck á þessu ári sem og sannfærandi sigur á Færeyjum á dögunum gefa tilefni til bjartsýni um að þessi leiðinlega hefð landsliðsins heyri sögunni til eftir föstudagskvöldið.Fyrsti heimaleikur Íslands í undankeppnum EM 2000: 1-1 jafntefli við Frakkland HM 2002: 1-2 tap fyrir Danmörku EM 2004: 0-2 tap fyrir Skotlandi HM 2006: 1-3 tap fyrir Búlgaríu EM 2008: 0-2 tap fyrir Danmörku HM 2010: 1-2 tap fyrir Skotlandi EM 2012: 1-2 tap fyrir Noregi
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða Handbolti Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Enski boltinn „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Enski boltinn „Það trompast allt þarna“ Handbolti EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Fleiri fréttir Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Sjá meira