Sjálfboðaliðum þakkað 6. september 2012 03:00 Fannst látin á mánudagskvöld, mánuði eftir að hún týndist.mynd/norska lögreglan
Hundruð manna mættu í gær til minningarathafnar um Sigrid Giskegjerde Schjetne, sex-tán ára stúlku sem fannst látin á mánudagskvöld, mánuði eftir að hún hvarf. „Þetta er ótrúlegt. Fólk hefur komið langar leiðir. Þetta er engu líkt,“ sagði Geir Strand, talsmaður fjölskyldu stúlkunnar, í viðtali við norska dagblaðið Aftenposten. Bæði fjölskylda hennar og norska lögreglan þökkuðu þúsundum sjálfboðaliða sem tóku þátt í leitinni að henni, sem stóð yfir í fjórar vikur. Hún fannst vafin inn í plast í um það bil fimmtán mínútna göngufjarlægð frá staðnum þar sem hún hvarf að kvöldi 4. ágúst. Hún hafði lagt af stað fótgangandi heim til sín frá vinkonu sinni. Lögreglan telur að tilviljun ein hafi ráðið því að Sigrid varð fyrir barðinu á morðingjunum. Árásin hafi ekki verið skipulögð fyrirfram. Lögreglan hefur samt enn ekki gefið upplýsingar um dánarorsök stúlkunnar en biður um ábendingar frá almenningi, sem gætu gagnast við rannsókn málsins. „Við getum ekki sagt neitt meira um það sem gerðist og vinnum í dag út frá nokkrum kenningum,” segir Hanne Kristin Rohde hjá norsku rannsóknarlögreglunni. Tveir menn hafa verið handteknir, grunaðir um að hafa myrt stúlkuna. Annar þeirra er 37 ára en hinn 64 ára. Þeir þekkjast vel, eru sagðir hafa kynnst í gegnum sameiginlegan áhuga á bílum. Yngri maðurinn hefur langa sögu um geðtruflanir og ofbeldishegðun. Í vor hugðust læknar leggja hann inn á geðdeild, gegn vilja hans, en hann andmælti og var ekki lagður inn. Samkvæmt norskum fjölmiðlum var það ábending um andlegt ástand hans, sem barst lögreglu frá ættingja hans, sem varð til þess að grunur féll á þessa tvo menn og leiddi til handtöku þeirra. Báðir neita þeir sök og báðir segjast reyndar hafa fjarvistarsönnun, sem útiloki þá frá því að hafa átt hlut að morðinu á Sigrid. Sá eldri kom til vinnu í prentsmiðju nokkru eftir miðnætti nóttina sem hún hvarf og ók síðan með blöð snemma morguns. Þá hefur norska ríkisútvarpið rætt við kunningja eldri mannsins. Kunninginn segir að sá hafi síðastliðinn föstudag trúað honum fyrir því, að sig grunaði að vinur hans hafi átt hlut að hvarfi stúlkunnar. Þess vegna telur kunninginn litlar líkur á að eldri maðurinn hafi átt hlut að morðinu. Mennirnir tveir verða leiddir fyrir dómara í dag og farið fram á gæsluvarðhald yfir þeim báðum. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Arnarfell dregið til Færeyja Innlent Framtíð kanslarans í húfi Erlent Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Erlent Fleiri fréttir „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Samþykktu frumvarp Grahams einu og hálfu ári seinna Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Varði breytingar á reglum um ráðningar og dýraníð Sjá meira