Gylfi: Löngu kominn tími á sigur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. september 2012 12:15 Gylfi á landsliðsæfingu í vikunni. Mynd/Anton
Gylfi Þór Sigurðsson vill fá gott veganesti úr leiknum í kvöld fyrir viðureign Íslands gegn Kýpverjum ytra á þriðjudagskvöldið. Gylfi verður í lykilhlutverki í leik íslenska liðsins í kvöld en hann er sá fyrsti hjá liðunum í undankeppni HM 2014. „Það er fyrir löngu kominn tími á sigur. Þetta er fyrsti leikurinn í nýrri keppni og það væri gott að byrja á sigri. Þá förum við með sjá sjálfstraust til Kýpur og vonandi hægt að gera góða hluti þar," sagði Gylfi. „Það er tímabært að við gerum eitthvað af viti, sérstaklega á heimavelli. Við sýndum gegn Frökkum og Svíum í sumar að við erum aðeins skárri en í síðustu keppni þar sem við fengum eitt stig. Þetta verður spennandi í fyrstu tveimur leikjunum." Hann segist hafa orðið var við viðhorfsbreytingu gagnvart landslðinu. „Umfjöllunin er aðeins jákvæðari og fólk virðist átta sig á því að það þurfi að mæta á völlinn og skapa stemningu. Það var fólk báðum megin í stúkunni síðast [gegn Færeyingum] og verður gaman að sjá hvernig mætingin verður nú." Gylfi gekk í raðir Tottenham í sumar en liðið er skipað mörgum sterkum leikmönnum. Þrátt fyrir það er liðið einungis með tvö stig eftir fyrstu þrjá leikina. „Við fengum marga góða leikmenn í glugganum og óskandi að liðið nái að slípa sinn leik sem fyrst svo við getum farið að vinna einhverja leiki. Mér hefur sjálfum gengið þokkalega, þó svo að ég hefði viljað skora í fyrstu 2-3 leikjunum." „En stundum er þetta svona. Þetta kemur í hrinum. Við verðum bara að hafa trú á þjálfaranum og okkur sjálfum. Þá kemur þetta." Sem fyrr segir eru margir góðir leikmenn hjá Tottenham en Gylfi óttast ekki samkeppnina. „Ég vissi að það væru leikmenn á leiðinni og aðrir að fara. Þetta er af hinu góða. Við viljum vera með tvo leikmenn í hverri stöðu enda mikið af leikjum."
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Víkingur Götu - Stjarnan | Garðbæingar í góðum málum Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Fleiri fréttir Gri/Nja - FH | Hvað gerir Ída Marín eftir fimmuna? Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Víkingur Götu - Stjarnan | Garðbæingar í góðum málum Saliba frá í nokkra mánuði Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Sædís og Sandra sameinaðar í Köln Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ Argentíska landsliðið má búast við sekt „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Dortmund tilkynnir komu Bjarka Hrafns Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Reyndu að brjótast inn í hús Yamals De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ „Mig dreymdi þetta“ „Svekkjandi er rétta orðið“ „Ég er feginn að vinna loksins á heimavelli“ Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ „Miður mín fyrir hönd allra“ Sjá meira