Bjóða þrjú kíló af gulli fyrir dráp 31. desember 2012 06:00 Öryggisgirðing á veginum að forsetahöllinni í Sanaa, höfuðborg Jemen. Fréttablaðið/AP
Deild Al-kaída í Jemen hefur lagt fé til höfuðs bandaríska sendiherranum í Sanaa og hermönnum Bandaríkjahers í landinu. Hverjum þeim sem tekst að drepa sendiherrann eða amerískan hermann er lofað tugþúsundum Bandaríkjadala. Í hljóðvarpi sem al-Malahem-stofnunin, fjölmiðlunararmur Al-kaída-deildarinnar, sendi út á laugardag og birti á vefmiðlum er lofað þremur kílóum af gulli fyrir víg sendiherrans. Slíkt magn af gulli er 160 þúsunda Bandaríkjadala virði, eða sem svarar tæplega 21 milljón króna. Þá er lofað fimm milljónum jemenskra ríala hverjum þeim sem drepur amerískan hermann í Jemen. Sú upphæð samsvarar 23 þúsund dölum, eða rétt tæpum þremur milljónum króna. Boðið um greiðslu fyrir víg af þessu tagi er sagt gilda næsta hálfa árið. Viðbrögð fengust ekki við hótuninni hjá sendiráði Bandaríkjanna í Sanaa þegar fréttastofa AP leitaði eftir þeim í gær. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa hins vegar sagst líta á deild Al-kaída í Jemen sem eina þá hættulegustu sem rekin er í nafni samtakanna. Yfirmenn öryggismála í Sanaa upplýstu í gær að tveir vígamenn á mótorhjólum hafi snemma í gærmorgun ráðist á og drepið tvo starfsmenn leyniþjónustu landsins þar sem þeir yfirgáfu öryggisbyggingu í miðbæ borgarinnar. Þá er Al-kaída vígamönnum á mótorhjólum kennt um fjölda sambærilegra drápa á leyniþjónustumönnum og hermönnum fyrr á þessu ári. - óká
Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Sjá meira