Vilja ekki loka Laugaveginum fyrir umferð - kenna bílahatri um Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 7. mars 2012 12:52 Laugavegi var lokað fyrir umferð síðasta sumar. Mannlífið jókst, en 40 búðareigendur segja það ekki hafa skilað sér inni í búðirnar. Mynd / Vilhelm
Fjörutíu kaupmenn rótgróinna verslunar á Laugaveginum mótmæla áformum um lokun götunnar fyrir bílaumferð. Þeir segja rekstrargrundvöll verslana vera í húfi. Kaupmennirnir afhentu borgarstjóra undirskriftarlista í ráðhúsinu í morgun. Björn Jón Bragason verslunarmaður í verslun Guðsteins fer fyrir hópnum. „Verslun hefur einfaldlega hrunið þá daga sem það er lokað fyrri bílaumferð, langflestir viðskiptavina okkar koma gagngert í miðborgina til að versla í ákveðnum búðum og koma á sínum bíl og vilja geta lagt sínum bíl nálægt verslunum og þetta er í raun bara aðför að einkabílnum um leið," segir Björn Jón í samtali við fréttamann. Hann segir þá tilraun síðasta sumar að loka neðri hluta Laugavegar fyrir bílaumferð hafi orðið til þess að velta dróst saman í flestum verslunum. „Því hefur reyndar verið haldið fram að það sé meira líf á Laugaveginum og það er gott og vel en það segir ekki til um veltu í búðunum það er að segja hversu mikil umferð er á gangstéttunum," segir Björn Jón. Hann segir hugmyndir um að loka stærri hluta af Laugaveginum næsta sumar og jafnvel að loka götunni alveg, þá er verið að hækka bílastæðagjöld um tugi prósenta. Björn segir þetta í andstöðu við þróun í verslunargötum erlendis. „Til að mynda í Bretlandi er umræða um það að fækka til að mynda gjaldskyldum stæðum í nágrenniverslunargata og lækka bílastæðagjöld," segir Björn Jón sem bætir við: „Þetta er partur af hatri á einkabílnum sem maður heyrir hjá ansi mörgum kjörnum fulltrúum Reykvíkinga en það sem við höfum áhyggjur af er verslunin sjálf og hún hreinlega fái ekki þrifist."
Mest lesið „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Sjá meira