Þungir dómar í Héraðsdómi - samanlögð refsivist 22 ár 20. desember 2012 14:06 Börkur Birgisson við aðalmeðferð í Héraðsdómi Reykjaness.
Dómurinn sem féll í Héraðsdómi Reykjaness í dag tekur meðal annars til þriggja sérstaklega hættulegra líkamsárása, ólögmætrar nauðungar og frelsissviptingar. Ákæruvaldið lagði mikla áherslu á fyrsta ákærulið sem snérist um líkamsárás sem átti sér stað að Háholti í Mosfellsbæ, í janúar á þessu ári. Sakfellt var í öllum ákæruliðum en ákærðu neituðu allir sök. Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni og sjö öðrum var gefið að sök að hafa ráðist á fjóra menn sem voru í íbúðinni. Voru þeir vopnaðir hafnaboltakylfum, golfkylfum og sleggju. Húsráðandi, Bergur Már Ágústsson, hlaut þverbrot í gegnum nærhluta sköflungsbeins hægri fótleggs og 6 sentímetra opinn skurð á framanverðum sköflungnum, brot á hægri hnéskel og bólgu í kringum hnéð. Þá hlaut hann fjölda yfirborðsáverka á fótlegg, úlnliðum og handleggjum. Eins og áður hefur verið greint fá hér á Vísi voru Annþór og Börkur dæmdir til sjö og sex ára fangelsisvistar. Aðrir sem hlutu dóma fyrir árásina í Háholti voru Jón Ólafur Róbertsson, Kaj Anton A. Larsen, Sigmundur Geir Helgason, Sindri Kristjánsson, Smári Valgeirsson, Viktor Hrafn Einarsson og Viggó Emil Berglindarson. Voru þeir ýmist dæmdir til eins og hálfs árs eða tveggja ára fangelsisvistar. Í vitnisburði sínum við aðalmeðferð kvaðst Smári hafa lamið Berg Má með sleggjunni, eins oft og hann gat. Smári hlaut tveggja ára fangelsisdóm. Þá var hann og Kaj Anton sviptir ökuréttindum ævilangt. Í öðrum ákærulið voru Annþór og Börkur, ásamt Jóni Ólafi og Sigmundi Geir, sakfelldir fyrir frelsissviptingu og hættulega líkamsárás í Grafarvogi í desember árið 2011. Ákærðu voru sakaðir um að hafa veist að tveimur mönnum, lamið einn með spýtu og migið yfir hinn. Mönnunum var hótað lífláti og frekari líkamsmeiðingum, greiddu þeir ekki tiltekna fjárhæð. Framburður Annþórs og Barkar þótti ótrúverðugur og stangaðist hann á við framburð annarra. Þótti fullsannað að Annþór og Börkur hafi skipulagt árásina. Þriðji ákæruliður tekur til líkamsárásar á sólbaðsstofunni Sól í Hafnarfirði í október árið 2011. Þar var Annþór fundinn sekur um sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart tveimur mönnum. Annþór sló annan manninn, tók hann kverkataki og sleppti ekki fyrr en hann missti meðvitund. Því næst sló hann manninn ítrekað í andlitið. Annþór skipaði hinum að leggjast í gólfið, sparkaði í líkama hans og stóð á höfði hans.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sjá meira