Ísland hefur aldrei náð í stig á Balkanskaganum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. október 2012 07:00 Hermann Hreiðarsson skoraði síðasta mark Íslands í alvörulandsleik á Balkanskaganum. Hér fagnar hann á móti Búlgaríu. nordic photos / afp
Íslenska karlalandsliðið mætir Albaníu í Tírana í kvöld í undankeppni HM. Balkanskaginn hefur verið allt annað en gjöfull fyrir íslenska landsliðið í undankeppnum HM og EM í gegnum tíðina. Íslenska landsliðið hefur spilað sjö alvöru landsleiki í þessum hluta Evrópu og hafa þeir allir tapast. Það eru liðnir meira en tveir áratugir síðan íslenska landsliðið spilaði sinn fyrsta landsleik á Balkanskaganum og það var einmitt á móti Albaníu á Qemal Stafa-leikvanginum í maí 1991. Íslenska liðið átti þá afleitan leik og tapaði 0-1 fyrir heimamönnum en þau úrslit voru mikil vonbrigði og einu stigin sem Albanar fengu í riðlinum. Fyrstu fjórir leikir íslenska karlalandsliðsins í Balkanlöndunum töpuðust allir naumlega en þeir voru í Albaníu, Grikklandi, Makedóníu og Búlgaríu. Íslenska liðið er aftur á móti búið að fá á sig 9 mörk í undanförnum þremur leikjum sínum á Balkanskaganum. Þar af tapaði liðið 0-4 á móti Króatíu árið 2005 og 0-2 á móti Makedóníu í síðasta leik sínum þar sem var í júní 2009. Íslenska liðið var reyndar nálægt því að brjóta múrinn í september 2005. Íslenska liðið komst þá í 2-0 eftir sextán mínútna leik á móti Búlgaríu í Sofíu en tapaði leiknum á endanum 3-2. Íslenska liðið fékk dauðafæri til að bæta við forystuna en varð enn á ný að sætta sig við einn eitt stigalausa ferðalagið heim til Íslands. Íslenska liðið hefur einnig tapað báðum vináttulandsleikjum sínum í Balkanlöndunum. Sá fyrri var á móti Albaníu 2004 og sá seinni í Svartfjallalandi í febrúar á þessu ári en það var annar leikur íslenska liðsins undir stjórn Lars Lagerbäck.Alvörulandsleikir Íslands á Balkanskaganum 26. maí 1991* 0-1 tap fyrir Albaníu 13. maí 1992 0-1 tap fyrir Grikklandi 7. júní 1997 0-1 tap fyrir Makedóníu 24. mars 2001 1-2 tap fyrir Búlgaríu 26. mars 2003 0-4 tap fyrir Króatíu 7. sept. 2005 2-3 tap fyrir Búlgaríu 10. júní 2009 0-2 tap fyrir MakedóníuSamtals: 7 leikir, 7 töp.Markatala: 3-14*Leikur í undankeppni EM
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Fótbolti Öll spjót beinast að Írum og Heimi Fótbolti „Stundum ertu með hálfvita sem þjálfara“ Sport Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Handbolti Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Fótbolti „Ég var hálfviti fyrir að hafa ekki verið með hjálm“ Sport Síðustu landsleikir Arons Einars framundan Fótbolti Bjarki Steinn fótbrotinn og verður ekki með Fótbolti Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal náði sigurmarki gegn Emelíu í uppbótartíma Svekkjandi jafntefli hjá Glódísi Perlu og Cecilía Rán hélt hreinu í Íslendingaslag Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Myndasyrpa: Áritanir og æfing í Laugardalnum Bjarki Steinn fótbrotinn og verður ekki með Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Síðustu landsleikir Arons Einars framundan Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Öll spjót beinast að Írum og Heimi Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Mótmæli fyrir utan liðshótel lærisveina Heimis Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Steinn orðinn vinsæll eftir að Salah settist á hann Prentaði mynd af brotum sem áttu að verðskulda rauð spjöld Maldini ranglega ásakaður um eiturlyfjanotkun Kallaður heimskur og hræsnari fyrir að gagnrýna þjóðarmorð í Ísrael Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Blómstrar undir stjórn Freys: „Veit ekki hversu lengi við náum að halda honum“ Eiði Smára ekki skemmt Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Sjá meira