Umfjöllun: Albanía - Ísland 1-2 | Gylfi skoraði sigurmarkið Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. október 2012 13:22 Gylfi var hetja Íslands í kvöld. Mynd/Vilhelm
Ísland vann sögulegan sigur, 1-2, á Albaníu við fáranlegar aðstæður í Tírana í kvöld. Þetta var fyrsti sigur íslenska liðsins á Balkanskaganum. Gylfi Þór Sigurðsson tryggði Íslandi sigurinn með algjöru gullmarki. Seinka varð seinni hálfleik vegna þrumuveðurs og völlurinn var á floti allan leikinn. Vallaraðstæður voru gríðarlega erfiðar enda hellirigndi og völlurinn var á floti er flautað var til leiks. Það tók leikmenn beggja liða talsverðan tíma að átta sig á erfiðum aðstæðum. Það hafði líka nákvæmlega ekkert gerst í leiknum þegar Birkir Bjarnason kom Íslandi yfir. Innkast frá Aroni, Kári framlengir og Birkir komst á bakvið vörnina og skallaði boltann inn. Draumabyrjun. Albanir tóku öll völd á vellinum eftir markið og pressuðu á íslenska liðið. Það kom því lítt á óvart er Cani jafnaði leikinn. Kantmaðurinn fékk að senda óáreittur í teiginn. Sendingin hnitmiðuð á Cani, sem var á milli tveggja varnarmanna, og eftirleikurinn auðveldur. Sá er gaf stoðsendinguna var þó líklega rangstæður er hann fékk boltann en það þýddi lítt að væla yfir því. Fátt markvert gerðist áður en kom að hálfleik fyrir utan að enn bætti í rigninguna og völlurinn fór algjörlega á flot. Í hálfleik var farið yfir stöðuna og því velt upp hvort fresti ætti leiknum vegna veðurs. Eftir nokkra umhugsun var ákveðið að lengja hálfleikinn um tæpar 20 mínútur og sjá svo til hvort hægt yrði að spila þá. Það var ákveðið að gera eftir allt saman. Síðari hálfleikur fór því fram við algjörlega glórulausar aðstæður. Var eiginlega frekar spilaður sundknattleikur en fótbolti. Það var galið að spila. Albönum gekk mun betur í sundboltanum framan af og lá nokkuð á íslenska liðinu og nokkrum sinnum var liðið heppið að fá á sig mark. Íslenska liðinu gekk aftur á móti ekkert að hemja boltann í vatnselgnum og hefði stig verið vel þegið miðað við þa stöðu. Þá steig Gylfi Þór Sigurðsson upp. Hann nældi í aukaspyrnu rétt fyrir utan teig. Hann tók spyrnuna að sjálfsögðu sjálfur og setti spyrnuna í markmannshornið. Boltinn fór í stöngina og inn. Albanir sóttu allt hvað þeir gátu síðustu mínúturnar en strákarnir héldu einbeitingu og héldu út.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“ Sport Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enski boltinn Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti Hlé á keppni eftir að Jón Erik þeyttist út í vegg Sport Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Enski boltinn Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot Enski boltinn Liverpool - Brighton | Snúið próf í bikarnum Enski boltinn Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - KA 36-31 | Valur náði fljótt forystu sem hann lét aldrei af hendi Handbolti Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport Fleiri fréttir Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Real Madrid - Real Sociedad | Leggur Orri stein í götu stórveldisins? Liverpool - Brighton | Snúið próf í bikarnum Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki KR lenti tveimur undir en er enn án taps Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Keflavík og HK á sigurbraut Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Sandra María mátti sætta sig við tap gegn sínu gamla liði Valgeir náði mikilvægum áfanga eftir krefjandi tíma Jón Dagur skoraði beint úr aukaspyrnu í fyrsta leik sínum með Brann Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Algjör óreiða á vef KSÍ: „Skil pirringinn en þetta mun allt koma“ Þjálfari fær níu leikja bann fyrir að svívirða kvenkyns dómara Raheem Sterling fann griðastað í liði Van Persie Sjá meira