Sjúklingar deyja úr hungri og þorsta á breskum sjúkrahúsum 8. október 2012 00:00 Fjöldi sjúklinga á breskum sjúkrahúsum deyr úr hungri og þorsta á hverju ári. Nordicphotos/Getty
Fjörutíu og þrír sjúklingar á breskum sjúkrahúsum dóu úr hungri í fyrra og hundrað og ellefu dóu úr þorsta. Að auki kemur fram í læknaskýrslum að 588 sjúklingar hafi þjáðst af alvarlegum vökvaskorti og 287 hafi verið alvarlega vannærðir þegar þeir dóu. Breska blaðið The Telegraph greindi frá þessu á laugardag og hefur eftir Katherine Murphy, framkvæmdastjóra samtaka sjúklinga í Bretlandi, að þessar tölur séu nöturlegur og skammarlegur vitnisburður um ástandið í Bretlandi á 21. öldinni. Í skýrslum bresku hagstofunnar kemur einnig fram að 78 sjúklingar á sjúkrahúsum og 39 sjúklingar í heimahjúkrun hafi dáið af völdum legusára og auk þess hafi 650 sjúklingar haft slæm legusár þegar þeir dóu, án þess að dánarorsökin verði rakin til þeirra. David Cameron, forsætisráðherra Breta, hefur látið málið til sín taka og sendi fyrr á þessu ári frá sér tilskipun þar sem hjúkrunarfólki var gert að fylgjast með sjúklingum á klukkustundarfresti til að koma í veg fyrir að þeir væru svangir, þyrstir eða með verki. Heilbrigðiseftirlitið breska hefur einnig hafið rannsókn á málinu og komist að því að á helmingi þeirra 100 sjúkrahúsa sem rannsóknin náði til hafi ummönnun aldraðra verið stórlega ábótavant.- fsb
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fleiri fréttir Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Sjá meira