Lætur sig falla úr 36 kílómetra hæð 8. október 2012 00:00 Felix Baumgartner
Fallhlífarstökkvarinn Felix Baumgartner hefur árum saman unnið að undirbúningi þess að slá öll met í þeirri grein. Á morgun verður svo komið að stóra stökkinu. Hann ætlar að fara með loftbelg upp í að minnsta kosti 36 kílómetra hæð og láta sig falla niður til jarðar. Hann reiknar með að fallið taki rúmlega fimm og hálfa mínútu áður en fallhlíf opnast þegar hann verður kominn niður í eins og hálfs kílómetra hæð. Hætturnar eru margar. Fyrir utan að hann gæti hálsbrotnað eða fótbrotnað við lendingu, þá er það lofthæðin sem gæti farið verst með líkamann: Vegna þess hve loftþrýstingur er lágur gæti blóðið farið að ?sjóða?, eins og það er kallað þegar lífshættulegar loftbólur taka að myndast í blóðinu. Æðarnar í heilanum gætu sprungið, og það gæti farið að blæða úr augunum. Læknar, verkfræðingar og aðrir aðstoðarmenn hans hafa hins vegar farið yfir öll atriði og telja nánast öruggt að hann eigi að komast heilu og höldnu til jarðar. Ýmislegt gæti þó farið úrskeiðis. Búningurinn gæti til dæmis rifnað og svo gæti hylkið slitnað frá loftbelgnum áður en nægilegri hæð er náð. ?Það eru mörg óvissuatriði,? viðurkennir Baumgartner, ?en við erum með lausnir sem hjálpa mér að lifa þetta af?. Baumgartner er 43 ára Austurríkismaður sem undanfarinn aldarfjórðung hefur stokkið í fallhlífum ofan af háhýsum og klettum víðs vegar um heim. ?Eftir þetta er ég hættur,? segir hann ákveðinn. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira