Þreytulegur og með grátstafinn í kverkunum 8. október 2012 12:06 April Jones, fimm ára, hefur verið saknað í eina viku
Breti á fimmtugsaldri, sem grunaður er um morðið á hinni fimm ára gömlu April Jones, var leiddur fyrir dómara í morgun. Leitin að stúlkunni hefur enn ekki borið árangur. Maðurinn, sem heitir Mark Bridger, var handtekinn á þriðjudag vegna gruns um aðild að brotthvarfi April Jones. Hann er nú grunaður um að hafa myrt stúlkuna þó hennar sé enn saknað en April var numin á brott á mánudagskvöld fyrir viku þegar hún var að leik með vinum við heimili sitt í Wales. Bridger hefur verið ákærður fyrir mannrán, morð og fyrir að hindra framgang réttvísinnar með því að losa sig við og fela lík hennar. Fréttaritari Skynews segir manninn hafa litið þreytulega út og verið með grátstafinn í kverkunum þegar hann var leiddur fyrir dómara í morgun. Hvorki hann né verjandi hans fékk tækifæri til að tjá sig en Bridger kemur aftur fyrir dómara á miðvikudag og verður þangað til í gæsluvarðhaldi. Leitin að April stendur enn yfir en litlar líkur eru á að hún finnist á lífi þar sem hún þjáist af heilalömun og þarf nauðsynlega á lyfjum að halda. Sjálfboðaliðum hefur fækkað þar sem leitin er nú komin á það stig að kraftar sérhæfðra lögreglumanna nýtast best. Tíu lögregluhópar hafa tekið þátt í leitinni til þessa en þeim hefur nú verið fjölgað um átta, þá hefur herinn einnig aðstoðað og mun gera það þar til hans er ekki lengur þörf.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Fleiri fréttir Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Sjá meira