Fótbolti

Kristianstad og Malmö unnu Íslendingaslagina

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Sara Björk skoraði fyrir topplið Malmö.
Sara Björk skoraði fyrir topplið Malmö. MYND/DANÍEL
Það voru tveir Íslendingaslagir í sænsku úrvalsdeild kvenna í fótbolta í dag. Kristianstad sigraði Örebro 4-0 þar sem Katrín Ómarsdóttir var á meðal markaskorara og Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði fyrsta mark Malmö í 4-0 sigri á Djurgården.

Sif Atladóttir og Katrín Ómarsdóttir léku báðar allan leikinn fyrir Kristianstad sem vann sinn fjórða sigur í fimm leikjum þegar liðið lagði Örebro. Edda Garðarsdóttir var í byrjunarliði Örebro og lék allan leikinn.

Guðný Björk Óðinsdóttir er sem fyrr meidd og lék því ekki með Kristianstad sem leikur undir stjórn Elísabetar Gunnarsdóttur.

Katrín Ómarsdóttir skoraði annað mark Kristianstad á 60. mínútu en Therese Andersson skoraði eina mark fyrri hálfleiks á 25. mínútu. Susanne Moberg skoraði þriðja markið á 68. mínútu og það var svo fjórum mínútum fyrir leikslok að Elin Nilsen skoraði fjórða markið.

Það tók Malmö ekki langan tíma að gera út um leikinn á móti Djurgården. Sara Björk skoraði á 2. mínútu, Þjóðverjinn Katrin Schmidt bætti öðru marki við á 13. mínútu og landa hennar Anja Mittag skoraði þriðja markið sex mínútum síðar. Katrine Veje frá Danmörku bætti fjórða markinu við fimm mínútum fyrir leikslok.

Þóra Helgadóttir varði mark Malmö og Sara Björk lék allan leikinn. Guðbjörg Gunnarsdóttir sat á varamannabekk Djurgården allan leikinn og Katrín Jónsdóttir er meidd.

Malmö er sem fyrr á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar, með 33 stig í 13 leikjum. Kristianstad lyfti sér upp í þriðja sætið með 25 stig. Örebro er í bullandi fallbaráttu með 10 stig, stigi á undan AIK og Djurgården situr sem fastast á botninum með 6 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×