Svona gæti heimsendir átt sér stað 20. desember 2012 15:21
Umræðan um meintan heimsendi á morgun, þann 21. desember, nær nú hámarki. Vísindamenn og sérfræðingar hafa ítrekað bent á að engar líkur séu á ragnarökum. En hættan er sannarlega til staðar. Hér fyrir neðan verður farið yfir nokkrar aðstæður sem gætu markað endalok mannkyns.Rétt er að taka fram að líkurnar á því að þessir atburðir eigi sér stað á næstunni er nánast engar. Ofureldfjall Líkurnar á að öflugur jarðskjálfti rífi í sundur stærstu misgengi jarðskorpunnar eru hverfandi. En það eru engu að síður önnur jarðfræðileg fyrirbæri sem gætu stefnt framtíð mannkyns í óefni. Einna helst eru það ofureldfjöll, það er, eldfjöll sem geta framleitt yfir eitt þúsund rúmkílómetra af gosefnum í einu gosi. Talið er að um 4 til 5 slík eldfjöll séu til staðar á Jörðinni. Jarðskjálftafræðingurinn Thorne Lay hjá háskólanum í Kaliforníu telur að slíkt eldgos geti átt sér stað. Í þeim efnum bendir hann á ofureldfjallið sem liggur djúpt undir Yellowstone-þjóðgarðinum í Bandaríkjunum. Á síðustu tveimur milljónum ára hefur eldfjallið gosið tvisvar. Lay segir að slíkt eldgos yrði reiðarslag fyrir Norður-Ameríku. Eldgos sem þessi hafa gegnt stóru hlutverki á tímabilum fjöldaútdauða. Nægir þar að benda á aldauða risaeðlanna fyrir 65 milljónum ára. Þá leikur einnig grunur á að ofureldfjall í Síberíu hafi stuðlað mesta fjöldaútdauða jarðsögunnar fyrir rúmlega 250 milljónum ára. Gígurinn í Yellowstone hefur risið um rúma 25 sentímetra á síðasta áratugi. Þetta gefur til kynna að kvika sé á hreyfingu djúpt í eldfjallinu. Það er hins vegar með öllu óvíst hvenær næsta eldgos mun eiga sér stað.Smástirni Alheimurinn er risavaxinn og mannkyn hefur rétt svo fengið nasaþef af leyndardómum geimsins. En hætturnar eru margar. Smástirni hafa lengi vel verið sú hætta sem hvað líklegust er til að marka endalok mannkyns. Risaeðlurnar fengu að kynnast þessar hættu þegar risavaxið smástirni hafnaði í Yacatan-skaga í Mexíkó fyrir 65 milljónum ára. Við höfum átt náin kynni við stór smástirni síðustu áratugi en líkurnar á árekstri eru þó afar litlar. Geimferðarstofnun Bandaríkjanna, NASA áætlar að stór smástirni (50 metrar) skelli á jörðinni á 100 ára fresti. Slíkur árekstur getur valdið gríðarlegri eyðileggingu. Vísindamenn telja að stórt smástirni hafi síðast skollið á jörðinni árið 1908 á afskekktu svæði við Tunguska-ánna í Rússlandi. Sprengingin var á við þúsund kjarnorkusprengjur.MYND/NASASólstormur Sólstormar eru algeng fyrirbæri. Þá blæs Sólin fjölmörgum bylgjum af hlöðnum eindum út í geiminn. Þessar agnir skella öðru hverju á jörðinni. Úr verður stórfenglegt sjónarspil sem við þekkjum sem norðurljós. Stór sólstormur getur haft áhrif á rafsegulsvið jarðarinnar. Það var síðast árið 1859 sem slík bylgja skall á jörðinni. Afleiðingarnar voru minniháttar. Fregnir bárust af því þegar ritsímar bræddu úr sér og rafmagn fór af á vissum stöðum. Margt hefur hins vegar breyst á síðustu áratugum. Rafmagn og flæði þessi er lífsnauðsynlegt samfélagi mannsins í dag. Langvarandi skortur á rafmagni gæti haft hörmulegar afleiðingar í för með sér.Kjarnorkustríð Kjarnorkustríð er ekki ofarlega í huga fólks þessa dagana og virðist í raun vera fjarlægur möguleiki. En staðreyndin er sú að kjarnorkuvopn hafa aldrei verið jafn algeng og í dag. Níu lönd hafa yfir kjarnavopnum að ráða. Fimm af þeim eru aðilar að Alþjóðakjarnorkumálastofnun og hafa undirritað samning gegn útbreiðslu kjarnavopna. Í grein sem birtist í vísindatímaritinu Physics Today árið 2008 greindu vísindamenn frá því að aðeins þyrfti 100 kjarnorkusprengjur til að framkallað kjarnorkuvetur. Sú ógn sem talin er stafa af tilraunum Norðu-Kóreu og Íran er síðan áminning um að þessi gamla ógn er sannarlega enn til staðar.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Innlent Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Innlent Fleiri fréttir „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Sjá meira