Telja að H.C. Andersen hafi ekki skrifað nýfundna ævintýrasögu 21. desember 2012 09:48
Sérfræðingar í skrifum danska skáldsins H.C. Andersen eru langt í frá sammála um að nýfundin saga sem eignuð er honum sé ekta eða ekki. Það vakti heimsathygli fyrr í mánuðinum þegar greint var frá því að fundist hefði ævintýrasagan Tólgarkertið eða Tællelyset og að um væri að ræða fyrstu ævintýrasöguna sem H.C. Andersen skrifaði. Sennilega væri sagan skrifuð á námsárum skáldsins eða þegar hann var 17 til 19 ára gamall á árunum 1822 til 1826. Í frétt um málið í Ekstra Bladet segir að málfarssérfræðingar séu síður en svo sammála um að þessi saga sé eftir H.C. Andersen og hluti þeirra telur að um eftirlíkingu af verkum skáldsins sé að ræða en slíkar eftirlíkingar var að finna á mörgum dönskum heimilum meðan að H.C. Andersen lifði. Prófessorinn Jörn Lund hefur rannsakað málfar H.C. Andersen og gaf út bók um rannsóknir sínar árið 1991. Hann telur að sagan Tólgarkertið sé ekki skrifuð af skáldinu. Lund nefnir sem dæmi að orðið formfuldendt komi fyrir í merkingunni gallalaus. Þetta orð varð ekki almennt í dönsku fyrr en eftir miðja 19. öldina. Það hafi raunar ekki komið fram fyrr en í sögunni Barónessan eftir H.C. Andersen árið 1848 eða 30 árum eftir að skáldið átti að hafa skrifað Tólgarkertið Þá bendir Lund einnig á stafsetningarvillu í Tólgarkertinu sem hann stórefast um að H.C. Andersen hafi gert sig sekan um. Í Ekstra Bladet kemur fram að aðrir séu sammála Lund um að sagan sé ekki eftir H.C.Andersen og að rannsaka þurfi málið betur.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Sjá meira