Heimsendaæði runnið á víða í heiminum 10. desember 2012 06:15
Heimsendaæði er runnið á víða í heiminum vegna þess að hið 5.125 ára gamla dagatal Mayanna rennur út þann 21. desember næstkomandi. Fólk hamstrar neyðarbirgðir um allan heim þessa dagana. Í Rússlandi er það einkum eldsneyti og salt sem keypt er í stríðum straumum. Þetta hefur gengið svo langt sumstaðar að Medvedev forsætisráðherra landsins hefur tjáð sig um málið. Hann segir að hann trúi því ekki að heimsendir sé í nánd, allavega ekki á þessu ári. Í Kína hefur kaupæði á kertum runnið á fólk í Sichuan héraði vegna skilaboða á twitter um að stöðugt myrkur verði fyrstu dagana í komandi heimsendi. Bæjarstjóri í frönsku þorpi á í standandi vandræðum með mikinn fjölda Nýaldarfólks sem telur að fjall við þorpið sé bækistöð geimvera sem hverfa munu á brott við heimsendinn og taka nokkra heppna jarðarbúa með sér. Í Bandaríkjunum hefur sala á neðanjarðarskýlum margfaldast, Einn sölumaður þeirra segist ætla að fara í sitt skýli þann 19. desember og koma ekki upp aftur fyrr en þann 23. Í Mexíkó hinsvegar, einu af heimalöndum Mayanna, hafa margir athafnamenn séð gullið tækifæri í komandi heimsendi. Þar er nú verið að skipuleggja ýmsar hátíðir og uppákomur fyrir ferðamenn í tilefni dagsins 21. desember.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Fleiri fréttir „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Sjá meira