Ákæran gegn Magnúsi stendur Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. desember 2012 15:27 Magnús Guðmundsson
Hæstiréttur felldi í dag úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að máli gegn Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, í al-Thani málinu skuli vísað frá. Þetta kemur fram á fréttavef RÚV, en Vísir hefur einnig fengið þessar heimildir staðfestar. Ákæran gegn honum verður því tekin til efnislegrar meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur. Al-Thani málið snýst um það að Magnús Guðmundsson og þrír aðrir lykilmenn í rekstri Kaupþings voru ákærðir fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun í tengslum vð sölu á 5% hlut í bankanum til Sheikh Mohammed bin Khalifa Al-Thani. Sérstakur saksóknari telur að um sýndarviðskipti hafi verið að ræða og al-Thani hafi aldrei greitt neitt fyrir hlutinn. Þessum gjörningi hafi verið ætlað að halda uppi hlutabréfaverði í bankanum. Auk Magnúsar voru Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður, og Ólafur Ólafsson, stærsti eigandi bankans, ákærðir. Sakborningar kröfðust allir frávísun málsins. Við fyrirtöku í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaði dómari að þeim ákæruliðum sem lúta að Magnúsi Guðmundssyni skyldi vísað frá. Fram kom í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur að ákæran á hendur honum væri svo óskýr og vanreifuð að vísa bæri henni frá dómi. Hæstiréttur felldi þann úrskurð úr gildi í dag og telur hann ákæruna nógu skýra til þess að sakborningar geti gripið til varna. Uppfært klukkan 16:40 Í úrskurði Hæstaréttar er ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa frá ákærulið á hendur Ólafi Ólafssyni einnig felld úr gildi.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Innlent Fleiri fréttir Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Sjá meira