Fótbolti

Á Godfrey Chitalu markametið en ekki Lionel Messi?

Godfrey Chitalu á að hafa skorað 107 mörk árið 1972 í Sambíu.
Godfrey Chitalu á að hafa skorað 107 mörk árið 1972 í Sambíu. Wikipedia
Það hefur varla farið framhjá neinum að Argentínumaðurinn Lionel Messi setti nýtt met s.l. sunnudag þegar hann skoraði sitt 86. mark á þessu ári í 2-1 sigri Barcelona gegn Real Betis. Þar með bætti hann met sem var áður í eigu Þjóðverjans Gerd Müller sem skoraði 85 mörk árið 1972. Nafn Godfrey Chitalu hefur nú verið dregið inn í þessa umræðu.

Samkvæmt fregnum frá Sambíu þá á Messi enn langt í land með að ná markametinu en Chitalu skoraði 107 mörk fyrir lið sitt Kabwe Warriors árið 1972.

Talsmaður knattspyrnusambands Sambíu segir í viðtali við vefmiðilinn Soccerladuma að Chitalu eigi markametið í Sambíu en það met hafi ekki verið skráð hjá alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA. Knattspyrnusambandið í Sambíu hefur sett í gang viðamikla vinnu þar sem að safna á saman gögnum sem gætu stutt þessa kenningu þeirra.

Jørn Sundby, sem starfar hjá tölfræðifyrirtækinu Infostrada, segir í viðtali við norska ríkisútvarpið að það gæti reynst erfitt að afla upplýsinga um málið þar sem að það sé ekki mikil hefð fyrir því að geyma skýrslur frá leikjum í Afríku. Sundby stórefast um að knattspyrnuyfirvöld í Sambíu geti sýnt fram á að Chitalu hafi skorað 107 mörk á einu ári.

Chitalu er markahæsti leikmaður landsliðs Sambíu frá upphafi með 76 mörk. Hann var aðeins 45 ára gamall þegar hann lést í flugslysi árið 1993 en þá var hann landsliðsþjálfari A-landsliðsins. Allir leikmenn landsliðsins létust í þessu flugslysi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×