Á Godfrey Chitalu markametið en ekki Lionel Messi? 11. desember 2012 15:45 Godfrey Chitalu á að hafa skorað 107 mörk árið 1972 í Sambíu. Wikipedia
Það hefur varla farið framhjá neinum að Argentínumaðurinn Lionel Messi setti nýtt met s.l. sunnudag þegar hann skoraði sitt 86. mark á þessu ári í 2-1 sigri Barcelona gegn Real Betis. Þar með bætti hann met sem var áður í eigu Þjóðverjans Gerd Müller sem skoraði 85 mörk árið 1972. Nafn Godfrey Chitalu hefur nú verið dregið inn í þessa umræðu. Samkvæmt fregnum frá Sambíu þá á Messi enn langt í land með að ná markametinu en Chitalu skoraði 107 mörk fyrir lið sitt Kabwe Warriors árið 1972. Talsmaður knattspyrnusambands Sambíu segir í viðtali við vefmiðilinn Soccerladuma að Chitalu eigi markametið í Sambíu en það met hafi ekki verið skráð hjá alþjóða knattspyrnusambandinu, FIFA. Knattspyrnusambandið í Sambíu hefur sett í gang viðamikla vinnu þar sem að safna á saman gögnum sem gætu stutt þessa kenningu þeirra. Jørn Sundby, sem starfar hjá tölfræðifyrirtækinu Infostrada, segir í viðtali við norska ríkisútvarpið að það gæti reynst erfitt að afla upplýsinga um málið þar sem að það sé ekki mikil hefð fyrir því að geyma skýrslur frá leikjum í Afríku. Sundby stórefast um að knattspyrnuyfirvöld í Sambíu geti sýnt fram á að Chitalu hafi skorað 107 mörk á einu ári. Chitalu er markahæsti leikmaður landsliðs Sambíu frá upphafi með 76 mörk. Hann var aðeins 45 ára gamall þegar hann lést í flugslysi árið 1993 en þá var hann landsliðsþjálfari A-landsliðsins. Allir leikmenn landsliðsins létust í þessu flugslysi.
Fótbolti Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Segir FIFA skoða að fjölga liðum á HM í 64 Uppgjörið: Fram - Þór 6-1 | Framarar settu upp sýningu Draumabyrjun Freys hjá norska stórveldinu Sjáðu Róbert Frosta tryggja GAIS dísætan sigur „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Haaland eldri hraunar yfir dómarana Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands Sjá meira