Gervitungl Norður-Kóreu stjórnlaust 12. desember 2012 23:42 Frá eldflaugaskotinu í dag. MYND/AP
Eftir nokkrar misheppnaðar tilraunir hefur Norður-Kóreumönnum loks tekist að koma gervitungli á sporbraut um jörðu. Geimskotið átti sér stað í dag. Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna hefur fordæmt eldflaugaskotið en nokkur ríki hafa lýst yfir áhyggjum af því að eldflaugatilraunir Norður-Kóreu séu liður í kjarnorkuáætlun landsins. Sem fyrr þvertaka yfirvöld í Norður-Kóreu fyrir það og ítreka að tilgangur eldflaugaskotsins hafi verið að koma veðurtungli á sporbraut um jörðu. Sama hver raunverulegur tilgangur geimskotsins er þá er ljóst að tilraun Norður-Kóreu hefur misheppnast. Þrátt fyrir að gervitunglið svífi nú hátt yfir jörðu virðist svo vera að vísindamenn í Norður-Kóreu hafi enga stjórn á farinu. Samkvæmt mælingum bandarísku loftvarnastofnunarinnar, NORAD, er gervitunglið stjórnlaust. Þetta eru hreint ekki góðar fréttir þar sem fjölmörg gervitungl eru á sporbraut um jörðu. Árekstrar gervitungla eru sjaldgæfir en hafa þó átt sér stað. Slíkar hamfarir áttu sér stað árið 2009 þegar tæplega 600 kílóa gervitungl sem var hluti af Iridium-fjarskiptakerfinu skall á rússnesku gervitunglu sem vó rúmlega eitt tonn.
Mest lesið Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Erlent Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Erlent Ekkert út á Dorriti að setja en frásögn eigenda ekki á rökum reist Innlent Fleiri fréttir „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Sjá meira