Framherjar Íslands skora og skora Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. desember 2012 13:30 Aron Jóhannsson. Mynd/AGF
Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Íslands, glímir þessa dagana við lúxusvandamál. Framherjar landsliðsins eru sjóðheitir víðs vegar um Evrópu. Kolbeinn Sigþórsson er enn frá keppni vegna meiðsla en sem betur fer kunna fleiri íslenskir framherjar að skora.Aron JóhannssonAGF Århus 18 leikir / 14 mörk Fimmtán vikur eru síðan landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck gaf í skyn að Aron væri ekki klár fyrir íslenska landsliðið. Áframhaldandi markaskorun Arons með AGF í Árósum varð til þess að hann var valinn í næsta landsliðshóp en meiðsli urðu til þess að hann dró sig úr hópnum. Þrjú mörk Arons á innan við fjórum mínútum í leik með AGF í dönsku úrvalsdeildinni í haust skutu framherjanum upp á stjörnuhimininn. Aron, sem er uppalinn í Grafarvoginum hjá Fjölni, hefur raðað inn mörkunum hjá AGF og er markahæsti leikmaður dönsku úrvalsdeildarinnar þegar vetrarhlé er farið í hönd. Aron hefur skorað 14 mörk eins og framherji FC Kaupmannahafnar, Andreas Cornelius, en Aron hefur leikið mun færri mínútur en kollegi sinn. Sú leiða staða er komin upp fyrir Íslendinga að Aron veltir fyrir sér hvort hag hans sé betur borgið kjósi hann að spila fyrir bandaríska landsliðið í knattspyrnu. Foreldrar Arons voru námsmenn í Bandaríkjunum þegar hann fæddist en fyrir vikið hefur hann tvöfalt ríkisfang. Landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, Jürgen Klinsmann, hefur verið í sambandi við Aron og líklegt er að Aron æfi með liðinu í janúar. Aron sagði í viðtali við Fréttablaðið í október að hans draumur væri að spila fyrir íslenska landsliðið. Það er vonandi að sá draumur lifi enn góðu lífi í kollinum á framherjanum sjóðheita.Mynd/AFPGunnar Heiðar ÞorvaldssonIFK Norrköping 29 leikir / 17 mörk Gunnari Heiðari Þorvaldssyni frá Vestmannaeyjum virðist hvergi líða betur en í Svíþjóð. Gunnar Heiðar, sem leikið hefur með IFK Norrköping, var næstmarkahæsti leikmaðurinn á nýafstöðnu tímabili í sænsku úrvalsdeildinni með 17 mörk í 29 leikjum. Sjö ár eru liðin síðan Gunnar Heiðar sló í gegn í Svíþjóð en árin á milli hafa verið nokkuð mögur í samanburði við markaskorun Eyjapeyjans í Svíþjóð. Gunnar Heiðar var markakóngur sænsku úrvalsdeildarinnar með Halmstad árið 2005. Frammistaða hans vakti athygli liða í Evrópu og fór svo að hann var seldur til Hannover 96 í efstu deild í Þýskalandi. Lítið gekk hjá þýska liðinu og hefur Gunnar Heiðar verið á flakki í Noregi, Danmörku og Englandi síðan, auk þess sem flest benti til þess að framherjinn myndi snúa heim til Íslands og spila með ÍBV sumarið 2011. Svo fór ekki, sem betur fer fyrir stuðningsmenn IFK Norrköping. Gunnar Heiðar, sem er þrítugur, hefur skorað 5 mörk í 23 landsleikjum og verið inni í myndinni hjá landsliðsþjálfaranum á árinu. Silfurskórinn í Svíþjóð hefur staðfest að Gunnar Heiðar á nóg inni sem atvinnumaður í knattspyrnu erlendis.Mynd/Nordic Photos/GettyAlfreð FinnbogasonHeerenveen 14 leikir / 12 mörk Um áramótin getur Alfreð Finnbogason minnst ársins 2012 brosandi út að eyrum. Fyrir ári var hann leikmaður Lokeren í efstu deild belgísku knattspyrnunnar og allt gekk á afturfótunum. Þjálfari liðsins hafði litla trú á Alfreð, sem var lánaður til sænska úrvalsdeildarliðsins Helsingborg í mars. Óhætt er að segja að um heillaspor hafi verið að ræða fyrir framherjann 23 ára. Mörkin virtust koma á færibandi hjá sænska liðinu og þegar lánssamningur Alfreðs við félagið rann út voru þau orðin tólf. Alfreð var seldur til Heerenveen í efstu deild Hollands, þar sem ballið hélt áfram. Rúmum þremur mánuðum síðar er Alfreð næstmarkahæsti leikmaður deildarinnar með tólf mörk þrátt fyrir að tímabilið í Hollandi hafi verið hafið þegar hann söðlaði um. Alfreð skoraði seinna mark Íslands í fræknum sigri á Norðmönnum í undankeppni heimsmeistaramótsins á Laugardalsvelli í september og er líklega heitasti framherji Íslands um þessar mundir.Mynd/AFPEiður Smári GuðjohnsenCercle Brugge 10 leikir / 6 mörk Eftir vonbrigðadvöl hjá AEK í Grikklandi þar sem Eiður fótbrotnaði illa og félagið fór á hausinn tók Eiður Smári þá ákvörðun að ganga til liðs við botnlið belgísku knattspyrnunnar, Cercle Brugge. Frá því Eiður Smári yfirgaf Barcelona sumarið 2009 og gekk til liðs við franska félagið Monaco hafði lítið gengið hjá markahæsta landsliðsmanni Íslands frá upphafi. Eiður reyndi fyrir sér hjá Tottenham, Stoke og Fulham í ensku úrvalsdeildinni áður en ferillinn náði nýjum lægðum í Grikklandi og margir reiknuðu með því að búið væri að fjara undan kappanum. Belgíudvölin virðist hafa gert Eiði gott. Hann hefur skorað sex mörk í tíu leikjum með Cercle og fengið mikið hrós fyrir frammistöðu sína með liðinu. Um leið hefur hann náð því magnaða afreki að skora í sex deildarkeppnum Evrópu. Eftir að hann skoraði sex mörk með Valsmönnum á sextánda aldursári sumarið 1994 hafa netmöskvar Hollands, Englands, Spánar, Grikklands og nú Belgíu fengið að finna fyrir bylmingsskotum kappans. Það verður erfitt fyrir landsliðsþjálfarann Lars Lagerbäck að líta framhjá Eiði Smára við næsta landsliðsval.Gaui og Matti minna á sig Guðjón Baldvinsson og Matthías Vilhjálmsson voru iðnir við kolann við markaskorun með liðum sínum í næstefstu deildum Svíþjóðar og Noregs á liðnu tímabili. Halmstad, lið Guðjóns, og Start, lið Matthíasar, unnu deildina og spila því með liðum sínum í úrvalsdeildunum á næsta ári. Matthías skoraði 19 mörk í 33 leikjum með Start, en hann hefur spilað framar á vellinum með norska liðinu en hann gerði hjá FH. Guðjón skoraði 16 mörk í 30 leikjum með Halmstad og var á meðal markahæstu manna í deildinni. Ljóst er að Guðjón og Matthías eru klárir í slaginn, en samkeppnin um framherjastöðu í íslenska landsliðinu hefur sjaldan verið jafnmikil.Björn Bergmann og Heiðar Björn Bergmann Sigurðarson er farinn að spila reglulega með Wolves í b-deild ensku knattspyrnunnar. Skagamaðurinn 21 árs hefur skorað þrjú mörk fyrir Úlfana og er að finna sig betur eftir brösuga byrjun þar sem hann glímdi við meiðsli. Heiðar Helguson hefur verið í aðalhlutverki með toppliði Cardiff í sömu deild. Heiðar, sem er 35 ára og er hættur að gefa kost á sér í íslenska landsliðið, hefur skorað sjö mörk á tímabilinu en einnig verið duglegur að leggja upp mörk fyrir samherja sína. Því til stuðnings lagði Dalvíkingurinn upp þrjú mörk í frábærum útisigri Cardiff á Blackburn um síðustu helgi.
Fótbolti Mest lesið Íslandsmeistarinn getur orðið NBA meistari Körfubolti Milljarðamæringur réttir nítján ára íþróttakonu hjálparhönd Sport Þorði ekki í mikilvægan landsleik af ótta við stefnu Trumps Fótbolti Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Enski boltinn Með lögregluna á hælum sér vegna manndrápstilraunar Sport Spaun steig ekki feilspor en stór nöfn í brasi Golf Borga fimm milljarða fyrir táning Enski boltinn Dagskráin í dag: Erika berst við þá sænsku, úrslit NBA og US Open Sport Ekki spilað á Þjóðhátíð og meistararnir á heimavelli Íslenski boltinn Sjáðu Reed ná afar fágætum albatross með mögnuðu höggi Golf Fleiri fréttir Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Þorði ekki í mikilvægan landsleik af ótta við stefnu Trumps Borga fimm milljarða fyrir táning Ekki spilað á Þjóðhátíð og meistararnir á heimavelli Blikar hentu nágrönnunum út og gripu síðasta farseðilinn Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Flug FH heldur áfram inn í undanúrslit Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Bíða eftir gúmmíi og spila á Þórsvelli eins og stelpurnar Freyr missir stjörnuleikmann í marga mánuði Draumur Cunha rættist Lindex-mótið á dagskrá í kvöld Morata og fjölskylda hans fékk morðhótanir Sané mættur til Tyrklands Mótherjar Íslands urðu fyrir áfalli rétt fyrir EM Forsetinn gaf öllum nýja bíla Bað þjóðina um að fyrirgefa þeim Íslensku konurnar niður um eitt sæti á FIFA-listanum Pólski þjálfarinn segir af sér eftir deilurnar við Lewandowski Alexander-Arnold kominn með númer Sú markahæsta frá upphafi „með hreina samvisku“ Mömmu þjálfarans fannst framkoma Bellingham viðbjóðsleg Sané fær ofurlaun hjá Galatasaray Leverkusen vill varnarmann Liverpool Grealish fer ekki með á HM félagsliða Uppgjörið: Valur - Þróttur 2-1 | Valskonur í undanúrslit Þróttur fékk kröftugan framherja sem þarf að bíða fram að stórleiknum Sjá meira