Innlent

Ölvaður á 122 kílómetra hraða

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Átta ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi um helgina. Sá sem hraðast ók á Reykjanesbraut mældist á 122 kílómetra hraða. Hann var ölvaður undir stýri og var því sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Annar ökumaður mældist á 67 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 30 kílómetrar á klukkustund. Sá var jafnframt grunaður um fíkniefnaakstur, sem og þrír aðrir ökumenn sem lögregla hafði afskipti af.

Þá óku tveir réttindalausir og einn til viðbótar var á óskoðuðum bíl. Loks höfðu tveir ökumenn lagt bílum sínum ólöglega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×