Erlent

Hassklúbbur í húsnæði McDonalds í Esbjerg

Hassklúbbur er til staðar í húsnæði McDonalds hamborgarakeðjunnar við Torvet í miðbæ Esbjerg í Danmörku. Þar með fer hin ólöglega starfsemi í klúbbnum fram í örfárra metra fjarlægð frá börnum og unglingum í borginni.

Í frétt um málið á vefsíðu TV2 segir að sjónvarpsstöðin hafi ítrekað reynt að fá viðbrögð við þessari starfsemi hjá lögreglunni í Esbjerg en án árangurs. Lögreglan vill ekkert segja.

Forráðmenn McDonalds viðurkenna hinsvegar að þeir eigi í vandamálum með þessa nýju leigjendur sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×