Erlent

Vill að dönsk börn læri ensku frá sex ára aldri

Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra Danmerkur vill að grunnskólabörn læri ensku allt frá 1. bekk eða sex ára aldri.

Þetta er einn liður í umfangsmiklum breytingum sem Helle vill gera á námi grunnskólabarna í Danmörku. Meðal annars á að lengja skóladaginn hjá nemendum í 4. til 9. bekk og þeir nemendur eiga að verja auknum tíma í að læra dönsku og stærðfræði.

Helle segir í samtali við Berlingske Tidende að börnin verði duglegri í námi sínu við að eyða meiri tíma með kennurum sínum og ef að skóladagur þeirra sé meira samhangandi en nú er.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×