Erlent

Stúlkur standa sig mun betur en strákar í dönskum grunnskólum

Stúlkur ná betri einkunnum í fjórum af fimm mikilvægustu námsgreinunum á lokaprófum í dönskum grunnskólum. Það er aðeins í stærðfræði sem strákarnir standa sig betur.

Í fréttum danskra fjölmiðla um málið í morgun segir að mesti munurinn sé í dönsku en þar eru stúlkurnar með einum hærri í meðaleinkunn en strákarnir.

Þessi þróun vekur áhyggjur innan menntageirans í Danmörku enda er gott grunnskólapróf yfirleitt grundvöllurinn að góðri framhaldsskólamenntun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×