Höfundur Brasilíu látinn 6. desember 2012 13:02 Brasilía, helsta sköpunarverk Niemeyers. MYND/AP
Brasilíumaðurinn Oscar Niemeyer, einn áhrifamesti arkitekt veraldar, lést í gær, næstum 105 ára að aldri. Auðvelt er að bera kennsl á fagurfræðilegar áherslur Niemeyers en verk hans einkennast af aflíðandi formum sem sveigjast upp til að mynda svimandi háar byggingar, oft á tíðum þaktar gleri. Þessum áhrifum náði Niemeyer með notkun á járnbentri steinsteypu og var hann á meðal fyrstu manna til að nýta sér þessa steinsteyptegund.Oscar Niemeyer.MYND/APÁ meðal helstu verka Niemeyers eru höfuðstöðvar Sameinuðu Þjóðanna í New York en bygginguna hannaði hann ásamt svissneska arkitektinum og listamanninum Le Corbusier. Þá má einnig benda á höfuðstöðvar kommúnistaflokksins í París og Markísuna í Casa do Baile í suðausturhluta Brasilíu. En hans helstu verk, og þau sem tryggðu honum heimsfrægð, eru byggingarnar sem hannaði fyrir nýja höfuðborg Brasilíu. Höfuðborg landsins, sem einfaldlega heitir Brasilía var byggð frá grunni á tuttugustu öld. Borgarstæðið sem valið var fyrir nýju höfuðborgina liggur á hárri sléttu sem nefnist Planalto Central í miðvesturhluta landsins. Skipulagsfræðingurinn Lúcio Costa vann samkeppni um hönnun borgarinnar, sem 5550 manns tóku þátt í, og valdi hann Niemeyer sem aðalarkitekt.MYND/APÞannig áttu félagarnir eftir að skrá sig á spjöld sögunnar í sögu borgarskipulags og arkítektúrs enda var þetta eitt stærsta verkefni síðustu aldar. Borgin var hönnuð í módernískum stíl. Stjórnarbyggingarnar, þingið, forsetaskrifstofurnar, forsetabústaðurinn og landsbókasafnið voru allt sköpunarverk Niemeyers og þykja byggingarnar með merkustu gimsteinum arkitektúrs á 20. öldinni. Alls tók 41 mánuði, eða frá 1956 til 1960 að byggja Brasilíu.Hægt er að lesa ítarlega um Oscar Niemeyer og vefsvæði Lemúrsins en þar má einnig finna ljósmyndir af verkum hans.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent Fleiri fréttir Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Sjá meira