Erlent

Elsti eftirlifandi Auschwitz látinn

Frá Auschwitz.
Frá Auschwitz. MYND/AFP
Pólverjinn Antoni Dobrowlski lést í gær, 108 ára að aldri. Hann var elstur eftirlifenda úr Auschwitz-útrýmingarbúðunum.

Antoni, sem var kennari að mennt, var handtekinn af Gestapó árið 1942. Nasistar reyndu eftir fremsta megni að bæla niður menningu Pólverja og menntastétt landsins. Þannig var Antoni sakaður um að sinna kennslustörfum á laun.

Seinna meir var Antoni fluttur í útrýmingarbúðirnar í Gross-Rosen og Sachsenhausen. Hann var síðan frelsaður, ásamt öðrum, árið 1945.

Nasistar myrtu rúmlega milljón manns í Auschwitz. Fórnarlömbin voru flest gyðingar en margir Pólverjar voru einnig teknir af lífi þrátt fyrir að vera ekki af gyðingaættum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×