Erlent

Tíbeti kveikti í sér

Frá mótmælum Tíbeta í gær.
Frá mótmælum Tíbeta í gær. MYND/AP
Tíbeskur karlmaður á miðjum aldri bar eld að eigin skinni í klaustri í norðvesturhluta Kína í dag.

Um sextíu Tíbetar hafa svipt sig lífi með þessum hætti frá því í febrúar árið 2009. Þeir grípa til þessa örþrifaráðs til að mótmæla kúgun kínverskra stjórnvalda. Hafa yfirvöld í Kína verið sökuð um að reyna að þurrka út menningu Tíbeta.

Maðurinn, sem hét Dhondup, skilur eftir sig eiginkonu og son.

Kínversk yfirvöld þvertaka fyrir ásakanir Tíbeta og segja trúfrelsi vera við líði. Þá er því haldið fram að lífsgæði Tíbeta hafi aukist verulega á síðustu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×