Frygðardrykkur og bíómynd á leiðinni 13. október 2012 20:22 Dominique Strauss-Kahn.
Dominique Strauss-Kahn leitar nú uppreisn æru og endurskilgreiningar á sér sjálfum með aðstoð ráðgjafafyrirtækis, hann kom meðal annars í viðtal við franska blaðið Le Point þar sem hann sagðist hafa staðið í þeirri barnslegu trú að hann gæti lifað lífi sínu eins og hann vildi. Strauss-Kahn var ekki aðeins framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins heldur líklegt efni í forsætisráðherra Frakklands þegar hann var kærður fyrir að nauðga herbergisþernu á hóteli í New York. Í blaðinu New York Times er núverandi staða Strauss-Kahn rakin, en þar kemur fram að þessi fyrrum þungavigtarmaður í alþjóðastjórnmálum líti svo á að lostinn hafi verið glæpavæddur. Strauss-Kahn hefur ekki átt sjö dagana sæla eftir að þernan kærði hann fyrir nauðgun. Máli hennar var vísað frá dómstólum í New York en hún höfðaði einkamál gegn honum sem enn á eftir að fá niðurstöðu í. Eins var kæru belgískrar vændiskonu dregin til baka, en sú sagði fyrrum framkvæmdastjórann hafa beitt sig miklu ofbeldi og nauðgað sér. Framburður hennar breyttist nokkru síðar, hún sagði þá að kynlífið hafi verið ofbeldisblæti þar sem báðir aðilar tóku þátt af fúsum og frjálsum vilja. Það breytir því hinsvegar ekki að Strauss-Kahn horfir nú fram á að láta rétta yfir sér vegna tengsla sinna við vændishring sem bauð auðugum mönnum að taka þátt í svallveislum. Strauss-Kahn var handtekinn vegna málsins, hann sagði þá, eins og frægt er orðið, að hann hafi tekið þátt í veislunum, en ekki vitað að um vændiskonur væri að ræða, þar sem þær voru allar naktar. Strauss-Kahn hefur áður játað að vera libertanisti (libertine), sem er líklega smekklega leiðin til þess að útskýra að maður sé kynsvallari. Hann segir það ekki ólöglegt. Strauss-Kahn hefur grátbeðið fjölmiðla að gefa sér svigrúm. Það virðist þó engin vera á þeim buxunum að hlífa svallaranum, enda bæði bók um kynsvallið á leiðinni á markað, sem og kvikmynd þar sem stórleikarinn Gérard Depardieu mun túlka Strauss-Kahn. Þá hafa einnig ungir frumkvöðlar nýtt sér þörf Strauss-Kahn fyrir stinningarlyfið Viagra og markaðssett áfengan drykk sem frygðarlyf - en nafn drykksins ber skammstöfun fyrrum framkvæmdastjórans, DSK.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Innlent Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag Innlent Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Erlent Fleiri fréttir „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Opna landamærin og fjöldi fluttur frá Gasa Æðstiklerkur segir hvers konar árás geta hrint af stað stríði Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Mette-Marit biðst afsökunar á tengslum sínum við Epstein „Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Ákæru fyrir manndráp vísað frá Trump útnefnir Warsh sem næsta seðlabankastjóra Tíu ákærðir fyrir að drepa friðaða úlfa Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Reyndi að frelsa Mangione vopnaður pítsaskera Saksóknarar hóta uppreisn í Minneapolis „Hættulegasti maður Noregs“ fannst látinn í fangaklefa Segir Venesúela munu þurfa að sækja um úthlutun úr eigin olíusjóði í Katar Ellefu meðlimir glæpafjölskyldu teknir af lífi í Kína Fundu fjarlægustu vetrarbrautina hingað til Segir útsendara „mögulega“ ekki hafa fylgt verkreglum Segir Trump ekki reiðan Íslandi Dómsdagsklukkan færð fram Sendir herskipaflota að Íran og hótar „ofbeldi“ Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Verða ekki viðstödd réttarhöld stjúpsonarins Sjá meira