Casillas hefur haldið hreinu í 82 landsleikjum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. október 2012 12:15 Iker Casillas. Nordic Photos / Getty Images
Iker Casillas hefur verið aðalmarkvörður spænska landsliðsins í mörg ár en þessi 31 árs kappi á að baki 141 leik. Hann hefur sett fjöldamörg met, bæði með félagsliði sínu og landsliði. Þetta kemur fram á vefmiðlum Goal.com en þar eru teknar saman nokkrar staðreyndir um Casillas sem spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir rúmum tólf árum síðan. Hann var á ný í marki Spánar í 4-0 sigri á Hvíta-Rússlandi á föstudag. Í leiknum setti hann met því hann hefur nú ekki fengið mark á sig í 727 mínútur. Hann átti sjálfur gamla metið. Reyndar hefur enginn markvörður í sögunni haldið jafn oft hreinu í landsleikjum. Casillas hefur alls haldið hreinu í 82 landsleikjum en næstur á eftir kemur Hollendingurinn Edwin van der Sar sem hélt hreinu í alls 72 landsleikjum á sínum ferli. Á EM í sumar varð hann fyrsti leikmaður Spánar til að vinna 100 landsleiki á ferlinum. Hann hélt svo hreinu í 509 mínútur í röð á mótinu sem er nýtt Evrópumet. Casillas hefur verið fyrirliði Spánar síðustu árin og lyft Evrópubikarnum tvisvar (2008 og 2012) og heimsmeistarabikarnum einu sinni (2010). Hann hefur alls varið sex vítaspyrnur í úrslitakeppnum stórmóta. Af núverandi leikmönnum Real Madrid hefur enginn unnið jafn marga titla og Casillas. Hann hefur orðið spænskur meistari fimm sinnum og Evrópumeistari tvívegis. Aðeins þrír leikmenn í sögu Real Madrid eiga fleiri leiki að baki en Casillas. En markvörðurinn öflugi er ekki nema 31 árs gamall og ekki útlit fyrir annað en að hann eigi nóg eftir.
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Birna fékk skelfilegar fréttir og þarf að hætta Körfubolti „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Enski boltinn Skandall í krullu og ljót orð látin falla Sport Mark dæmt af Orra á Bernabéu Fótbolti Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“ Sport Hlé á keppni eftir að Jón Erik þeyttist út í vegg Sport Of seinn til að sjást í mynd: „Þetta er bara á allt of lágu plani“ Körfubolti Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Enski boltinn Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Enski boltinn Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Fótbolti Fleiri fréttir „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Skoraði fyrir bæði lið í stórleiknum Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Mark dæmt af Orra á Bernabéu Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki KR lenti tveimur undir en er enn án taps Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Keflavík og HK á sigurbraut Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Teddy trúir ekki að Tottenham taki Tudor Hjólar í hræsnarann Ratcliffe: „Hann er sjálfur innflytjandi“ Byrja á Eistum og enda loksins á heimavelli Chelsea ekki í neinum vandræðum í enska bikarnum Tuttugu og níu ára bið Wrexham á enda Þróttarar ekki í vandræðum með Blika Dramatík í Suðurnesjaslag Sandra María mátti sætta sig við tap gegn sínu gamla liði Valgeir náði mikilvægum áfanga eftir krefjandi tíma Jón Dagur skoraði beint úr aukaspyrnu í fyrsta leik sínum með Brann Fyrrum þjálfari Úlfanna tekur við hjá Forest Draga sig úr keppni og hvetja félög til að beita sér á ársþingi KSÍ Er Thomas Frank sá versti? Tudor tekur við Tottenham „Hann er skíthræddur“ Landsliðsþjálfari Norður-Íra tekur við liði Andra Lucasar Algjör óreiða á vef KSÍ: „Skil pirringinn en þetta mun allt koma“ Sjá meira