Dapurt gengi Íslendingaliðanna í Noregi 7. október 2012 17:58 Ekkert annað en fall blasir við Veigari Páli og félögum
Það var fátt um fína drætti hjá Íslendingaliðunum í Noregi í dag. Aðeins Haugesund með Andrés Má Jóhannesson í byrjunarliðinu vann sigur en Steinþór Freyr Þorsteinsson, Óskar Örn Hauksson, Bjarni Ólafur Eiríksson, Elfar Freyr Helgason og Veigar Páll Gunnarsson voru allir í tapliðum. Bjarni Ólafur, Elfar Freyr og Veigar Páll léku allir allan leikinn fyrir Stabæk sem tapaði 1-0 fyrir Tromsö. Stabæk er lang neðst í norsku úrvalsdeildinni með 13 stig eftir 25 leiki og ljóst að fátt getur komið í veg fyrir að liðið falli þegar fimm umferðir eru eftir og liðið ellefu stigum frá öruggu sæti. Andrés Már lék allan leikinn fyrir Haugesund sem sigraði Fredrikstad 1-0 með marki Geir Ludvig Fevang á 90. mínútu. Haugesund siglir lygnan sjó um miðbik deildarinnar. Það vantaði ekki dramatíkin í leik Molde og Sandnes Ulf. Steinþór Freyr lék allan leikinn fyrir Sandnes en Óskar Örn aðeins fyrri hálfleikinn þegar Molde vann 3-2 sigur. Molde var tveimur mörkum yfir í hálfleik en Sandnes virtist hafa náð stigi þegar liðið skoraði á 83. og 85. mínútu. Adam var ekki lengi í paradís því Vegard Forren tryggði Molde sigurinn mínútu eftir að Sandnes hafði jafnað metin. Sandnes er því enn í næst neðsta sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Sogndal og Fredrikstad en Sandnes á leik til góða. Molde er á toppi deildarinnar, með þremur stigum meira en Stömsgodset.
Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Curtis Jones farinn til Inter Enski boltinn Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Fleiri fréttir United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Konsa orðinn leikmaður Arsenal Sjáðu mörkin: Útsendari FH refsaði toppliðinu og Ása Björg með sýningu Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Enski boltinn hefst í kvöld Liverpool fær höfnun frá Brighton Aron Einar skoraði í fyrsta leik „Hún fær fullt frelsi til að fara í öll skógarhlaup sem henni dettur í hug“ Sjá meira