Fann eina milljón úti á götu - fékk 10 prósent í fundarlaun 30. september 2012 15:00
Norðmaður sem fann eina milljón úti á götu í norska bænum Finnsnes segir að það hafi aldrei hvarflað að sér að taka peningana og hlaupa á brott. Arnt Roger Myrvoll var á leið í vinnuna á dögunum þegar hann sá möppu sem staðsett var út í vegakanti. Hann stöðvaði bílinn og tók möppuna upp í bílinn til sín. Þegar hann opnaði möppuna reyndust vera 48 þúsund norskar krónur í henni, eða um eina milljón íslenskra króna. Það var ekkert nafn á möppunni, bara beinharðir peningar. Í samtali við blaðið Nordlys segir Myrvoll að hann hafi byrjað að telja peningana en hafi gefist upp þegar hann var kominn upp í þrjátíu þúsund. Hann hélt því áfram för sinni og í hádegishléinu í vinnunni fór hann á lögreglustöðina með peningana. Þegar þangað var komið tjáði lögreglumaður honum að starfsmaður í verslun í bænum hefði tapað möppunni og tilkynnt það til lögreglu. Forsvarsmenn fyrirtækisins voru svo ánægðir með heiðarleika Myrvoll að þeir ákváðu að borga honum 10 prósent af upphæðinni í fundarlaun. Í samtali við blaðið segir Myrvoll að vissulega hefði hann getað tekið peningana og farið í frí erlendis. En það hafi aldrei komið upp í hugann því það hefði verið frí á fölskum forsendum. Hann segist vonast til þess að flestir í sömu stöðu myndu gera það sama. Og þá er það spurningin, hvað myndir þú gera, ef þú myndir finna tíu milljónir úti á götu?
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira