Leigðar fartölvur geta tekið myndir af þér í stofunni 26. september 2012 22:00
Sjö tölvur, sem viðskiptavinir leigðu af tölvuleigum, tóku myndir af þeim, þar á meðal pari í miðjum ástarlotum. Þetta kemur fram á vef BBC en um er að ræða fartölvur sem fólk leigir en í þeim er forrit sem kallast „PC Rental Agent" og er hugsað til þess að endurheimta tölvurnar greiði viðskiptavinur ekki af þeim eða neitar að skila gripnum. Talið er að kerfið sé í 420 þúsund tölvum út um allan heim. Hluti af varnarviðbragði kerfisins er að þegar viðskiptavinur hefur ekki greitt fyrir tölvuna þá birtist gluggi á skjánum sem gefur sig út fyrir að vera skráningarsíða fyrir hugbúnaðinn sem viðkomandi er að nota. Þar er notandinn beðinn um símanúmer og vefpóst. Þá eru til dæmi um að kerfið komist yfir lykilorð notandans hjá samskiptasíðum svo sem Facebook. Flestar fartölvur nú til dags eru með innbyggðar myndavélar, sem forritin nota og taka myndir af fólki í stofunni heima hjá sér, hvað sem það er að gera þá stundina. Graham Cluley, sem starfar hjá tölvuöryggisfyrirtæki í Bretlandi, segir í viðtali við BBC, að fólk verði að fara varlega séu þeir að nota tölvur sem þeir eiga ekki sjálfir, því það sé aldrei að vita hvaða forrit séu í tölvunni. Þannig sé hægt að lágmarka áhættuna með því að gera ekki persónulega hluti fyrir framan tölvuna. Ekki er vitað hvort samskonar tölvuleigur séu hér á landi og þá hvort slíkur búnaður sé í þannig tölvum.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira