Dauðvona sjúklingur segist vita hvar Jimmy Hoffa er grafinn 27. september 2012 10:47
Dauðvona krabbameinssjúklingur er sagður hafa komið bandarisku lögreglunni á sporið um hvar lík verkalýðsforingjans Jimmy Hoffa er að finna. Hvarf Jimmy Hoffa fyrir 37 árum er eitt dularfyllsta mál sem komið hefur upp í sögu Bandaríkjanna á síðari tímum. Það er talið víst að mafían hafi myrt hann en slíkt hefur aldrei verið hægt að sanna þar sem lík Hoffa hefur enn ekki fundist. Hoffa var lengi leiðtogi Teamsters verkalýðsfélagsins sem á þeim tíma var stærsta verkalýðsfélag Bandaríkjanna með digra lífeyrissjóði. Síðar kom fram að mafían hafði greiðan aðgang að lánum úr þessum sjóðum, lánum sem aldrei voru endurgreidd. Síðast sást til Hoffa á veitingahúsi í Bloomfield Township í Michigan í lok júlí árið 1975. Síðan þá hafa margar vísbendingar borist um hvar hann er grafinn en þær hafa ekki leitt til neins. Lögreglan telur hinsvegar að vísbendingin sem hinn dauðvona krabbameinssjúklingur hefur gefið henni sé trúverðug en sjúklingurinn sem aðeins á fáa daga eftir ólifaða segist hafa engu að tapa með að upplýsa það sem hann varð vitni að kvöldið sem Hoffa hvarf. Hann segir að hann hafi séð nokkra menn grafa lík niður í innkeyrslu við hús í úthverfi borgarinnar Roseville í Michigan og er viss um að það hafi verið Hoffa. Verið er að undirbúa uppgröft í innkeyrslunni og verður byrjað á því verki á morgun.
Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Fleiri fréttir Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Sjá meira