Erlent

Sprengjusérfræðingar á heimili bresku fjölskyldunnar

BBI skrifar
Breskur rannsóknarlögreglumaður kíkir inn um glugga á heimili fjölskyldunnar í Claygate í Bretlandi.
Breskur rannsóknarlögreglumaður kíkir inn um glugga á heimili fjölskyldunnar í Claygate í Bretlandi. Mynd/AFP
Sprengjusérfræðingar breska hersins voru í dag sendir að heimili bresku hjónanna sem skotin voru til bana í frönsku Ölpunum í síðustu viku. Talið er sprengja hafi fundist á heimilinu. Húsin í nágrenninu hafa verið rýmd og svæðinu umhverfis lokað fyrir umferð.

Lögregluyfirvöld byrjuðu að rannsaka hús fjölskyldunnar í Claygate í Bretlandi á laugardaginn til að varpa ljósi á morðin í Ölpunum. Í morgun birtust sprengjusérfræðingar á heimilinu og virtust vera að fjarlægja eitthvað þaðan.

Í tilkynningu frá lögreglu kom fram að grunsamlegir hlutir hefðu fundist á heimilinu og frekari upplýsingar yrðu veittar síðar. Fyrrverandi sprengjusérfræðingur hersins sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC að lögreglan hefði líklega fundið heimagerða sprengju á heimilinu og í stað þess að flytja hana burt yrði hún gerð óvirk á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×