Erlent

Minnsti líkamsræktarmaður veraldar látinn

Minnsti líkamsræktarmaður veraldar, hinn tuttugu og þriggja ára gamli Aditya Romeo, lést eftir að hafa fengið slagæðargúlp í gær.

Romeo vann sér það til frægðar að lyfta eins og hálfs kílóa handlóðum og var fyrir vikið skráður í heimsmetabók Guinnes.

Romeo heitinn var níu kíló að þyngd og áttatíu og þrír sentímetrar á hæð.

Faðir Romeos sagði í samtali við breska fréttamiðilinn The Sun að sonur sinn hafi verið við hestaheilsu áður en hann missti meðvitund á heimili sínu í gærkvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×