Þungavigtarmenn meðal Repúblikana æfir út í Romney 19. september 2012 08:17
Þungavigtarmenn í Repúblikanaflokknum eru æfir af reiði út í Mitt Romney. Reiðin er vegna þess að þessum forsetaframbjóðenda þeirra tókst í einni og sömu ræðunni að móðga nær helming bandarísku þjóðarinnar, flest fólk af latneskum uppruna í Bandaríkjunum og Palestínumenn. Ræðan sem hér um ræðir var flutt á fundi með sterkefnuðum athafnamönnum sem hver um sig hafðí greitt 50.000 dollara eða um 6 milljónir króna fyrir kvöldverð með Romney, fé sem fór í kosningasjóð hans. Vefsíða Mother Jones hefur birt nokkra búta úr myndbandi af ræðunni sem vakið hafa verulega athygli. Í fyrsta bútnum segir Romney að nær helmingur þjóðar sinnar séu bótaþegar sem lifi á framfæri hins opinbera og borgi ekki tekjuskatta. Í næsta bút tekst honum að móðga fólk af latneskum uppruna með frekar misheppnuðum brandara. Í þriðja bútunum gerir hann svo Palestínumenn æfa af reiði með yfirlýsingum um að þeir stefni aðeins að tortímingu Ísraels og því sé tilgangslaust að semja við þá um sjálfstætt ríki. Það skal tekið fram að móðgunin í garð Palestínumanna er minnsta vandamálið að mati þungaviktarmanna í Repúblikanaflokknum. Það sem fer fyrir brjóstið á þeim er að þetta er langt í frá í fyrsta sinn sem Romney pissar í skóinn með yfirlýsingum sínum og hann eigi því í raun enga möguleika á sigri í komandi forsetakosningum. Í umfjöllun Financial Times um málið segir að margir þekktir íhaldsmenn hafi slegist í hóp með Barack Obama Bandaríkjaforseta í að gagnrýna Romney vegna ummælanna. Þannig segir William Kristol ritstjóri hins íhaldssama blaðs Weekly Standard að ummæli Romney hafi verið bæði hrokafull og heimsk. Þá kemur fram að tveir af frambjóðendum Repúblikanaflokksins í kosningunum til öldungadeildarinnar hafi tekið afstöðu gegn Romney vegna ummælanna en þetta eru Linda McMahon í Connecticut og Scott Brown í Massachusetts.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Fleiri fréttir Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Sjá meira