Erlent

Múslímskir harðlínumenn rústuðu bar í Túnis

Hópur múslímska harðlínumanna, sem kallast Salafistar, réðist í fyrrinótt inn á hótel í bænum Sidi Bouzid í Túnis og lagði bar hótelsins í rúst. Ástæðan fyrir þessari árás var að áfengi var selt á barnum.

Sala og neysla áfengis er lögleg í Túnis og hefur landið því notið vinsælda sem ferðamannaland.

Salafistar vilja að áfengi sé bannað í landinu í samræmi við sharia lögin og þeir hafa áður efnt til móttmæla gegn áfengisdrykkjunni.

Í frétt á BBC segir að áhrif Salafista færist í aukanna innan Túnis og hefi gert svo frá því að forseti landsins var hrakinn frá völdum í upphafi árs í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×