Vísindakirkjan læknar fórnarlömb Agent Orange BBI skrifar 7. september 2012 23:30 Mengað svæði merkt með gulum fána í Víetnam. Mynd/AFP
Fórnarlömb efnavopna bandaríkjahers í Víetnamstríðinu á sjöunda áratugnum bíða nú eftir hreinsunarmeðferð í boði Vísindakirkjunnar. Eins og stendur liggja 24 fórnarlömb á spítalanum í Hanoi og bíða meðferðarinnar. Vísindakirkju-menn nota svokallaða 'Hubbard aðferð' til að lækna alkóhólisma og fíkniefnafín. Aðferðin felur í sér gufuböð og vítamín. Vísindakirkjan opnaði miðstöð í New York borg eftir árásirnar á tvíburaturnana 11. september árið 2001 og bauð fólki sem mögulega hafði orðið fyrir eitrun upp á meðferð. Vísindamenn leyfa sér að efast um að aðferðin geri nokkurt gagn og kalla hana platvísindi og skottulækningar. Bandaríkjaher sleppti um 75 lítrum af eiturefnum, m.a. hinu svonefnda Agent Orange, yfir Víetnam í stríðinu til að þurrka út skóga sem víetnamskir hermenn leyndust í. Eiturefnin eru nú talin hafa valdið stökkbreytingum og alvarlegum fötlunum sem enn í dag koma fram í nýfæddum börnum á svæðinu.Meint fórnarlamb Agent Orange. Myndin tengist fréttinni ekki beint.Mynd/AFP„Ég vona að ég og konan mín læknumst endanlega í þessari meðferð," sagði Nguyen Dai Sang, sem bíður eftir meðferð Vísindakirkjunnar, í víetnömskum fjölmiðlum. Talsmaður bandaríska sendiráðsins í Víetnam tekur sérstaklega fram að bandaríska ríkið standi ekki á bak við meðferð Vísindakirkjunnar og bætti við að stjórnvöld í Bandaríkjunum vissu ekki til þess að til væri nein árangursrík leið til að hreinsa eiturefnin úr líkömum fólks. Þetta kom fram í breska blaðinu The Guardian í dag.
Mest lesið Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Innlent Íslendingur lést vegna hitaslags Innlent „Það hefði auðvitað verið betra“ Innlent Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Innlent Fleiri fréttir Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Sjá meira