Erlent

Sex létust í sjálfsmorðssprengjuárás

Frá Kabúl í morgun.
Frá Kabúl í morgun. mynd/AFP
Sex létust í sjálfsmorðssprengjuárás við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins í Kabúl í Afganistan snemma í morgun. Fórnarlömbin voru flest á barnsaldri en fimm aðrir særðust í árásinni.

Börn safnast reglulega saman fyrir utan höfuðstöðvar NATO til að selja hermönnum og öðrum starfsmönnum varning.

Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneyti Afganistan ók ódæðismaðurinn að herstöðinni á vélhjóli og sprengdi sig síðan í loft upp við inngang byggingarinnar.

Talibanar hafa lýst yfir ábyrgð á árásinni. Þá hefur hreyfingin gefið út að sprengjuárásin hafi verið beint gegn greiningardeild og leyniþjónustu bandaríkjanna CIA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×