Erlent

Náttúruhamfarir í Kína kostuðu 80 lífið

Frá suðvestur Kína í dag.
Frá suðvestur Kína í dag. mynd/AFP
Nokkrir snarpir jarðskjálftar riðu yfir suðvesturhluta Kína í nótt. Að minnsta kosti áttatíu létust í náttúruhamförunum.

Samkvæmt upplýsingum frá Jarðfræðistofnun Bandaríkjanna voru öflugustu skjálftarnir fimm komma sex stig að stærð. Óttast er að tala látinna eigi eftir að hækka þó nokkuð í dag.

Stór hluti hamfarasvæðisins er án rafmagns og þá hafa símkerfi einnig bilað. Miklar aurskriður mynduðust í kjölfar skjálftanna og hafa samgöngu farið úr skorðum víða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×