Ríkisstjórnin hrökklast frá 7. febrúar 2012 05:00 Emil Boc, forsætisráðherra og leiðtogi hægrimanna, á útleið eftir þriggja ára stjórnarsetu. nordicphotos/AFP
Ríkisstjórn Rúmeníu hefur sagt af sér vegna mikillar ólgu og mótmæla undanfarnar vikur. Aðhaldsaðgerðir að kröfu AGS og EBS eru óvinsælar. Ríkisstjórnin í Rúmeníu hefur hrökklast frá völdum. Emil Boc, sem hefur verið forsætisráðherra síðan 2008, sagði af sér í gær. Mikil ólga hefur verið í landinu síðustu viku vegna strangra aðhaldsaðgerða, sem fólu í sér bæði launalækkanir og skattahækkanir. Þúsundir manna hafa tekið þátt í mótmælaaðgerðum til að krefjast afsagnar stjórnarinnar. Margir landsmenn segjast ekki sjá að stjórnin hafi haft minnstu áhyggjur af vandamálum venjulegs fólks. Stjórnarandstaðan hrósaði sigri í gær og krafðist kosninga sem fyrst. „Þetta er sigur fyrir þá sem hafa mótmælt úti á götum,“ sagði Crin Antonescu, sem er leiðtogi Frjálslynda flokksins. Hann sagði nú vera farna frá völdum þá ríkisstjórn sem hefur verið spilltust, vanhæfust og logið mestu síðan kommúnistaveldið leið undir lok árið 1989. Boc forsætisráðherra varði hins vegar gerðir sínar: „Ég veit að ég hef tekið erfiðar ákvarðanir, en ávextir þeirra eru byrjaðir að sjást,“ sagði hann. „Á krepputímum er stjórnin ekki í vinsældakeppni heldur fæst hún við að bjarga landinu.“ Catalin Predoiu, dómsmálaráðherra í stjórn Bocs, verður forsætisráðherra þangað til ný stjórn hefur verið mynduð. Takist ekki að mynda nýja stjórn innan tveggja mánaða verður þingið leyst upp og boðað til kosninga. Traian Basescu forseti hefst nú handa við að ræða við flokksleiðtoga til að kanna grundvöll til nýrrar stjórnarmyndunar. Kjörtímabil núverandi þings rennur út í nóvember á þessu ári en mótmælendur vilja að boðað verði til kosninga sem fyrst. Stjórnin þurfti að skera verulega niður í ríkisfjármálum eftir að hún fékk 20 milljarða evra lán frá AGS og ESB árið 2009. Það ár varð samdráttur í efnahagslífinu upp á sjö prósent. Hefði stjórnin ekki fengið þessa fjárhagsaðstoð hefði henni ekki reynst fært að greiða út laun til allra ríkisstarfsmanna. Árið 2010 var söluskattur hækkaður úr 19 prósentum í 24 prósent og laun ríkisstarfsmanna lækkuð um fjórðung. Kreppan er þó ekki eina vandamálið í stjórnmálum Rúmeníu, því djúpstæður fjandskapur milli stjórnar og stjórnarandstöðu birtist daglega í fjölmiðlum landsins. Þá er Basescu forseti gagnrýndur fyrir að stilla ekki orðum sínum í hóf. Hann hefur verið fylgjandi aðhaldsaðgerðum stjórnarinnar og kröfunum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Sjá meira