Tryggvi í leikmannahópi ÍBV gegn FH Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. ágúst 2012 13:19
Tryggvi Guðmundsson, leikmaður ÍBV, verður samkvæmt heimildum Vísis í leikmannahópi liðsins sem mætir FH í Kaplakrika í Pepsi-deild karla í kvöld. Tryggvi hefur verið hefur utan hóps hjá ÍBV í kjölfar agabrots um Verslunarmannahelgina. Auk þess var samningi Eyjamanna við Eyþór Helga Birgisson rift vegna agabrots. Magnús Gylfason, þjálfari Eyjamanna, var í spjalli í útvarpsþættinum Boltinn á X-inu 977 í dag. Magnús útilokaði ekki að Tryggvi yrði í leikmannahópi ÍBV í kvöld sem yrði í fyrsta skipti síðan 29. júlí gegn Breiðabliki. „Eigum við ekki bara að bíða og sjá? Það er mikil spenna í kringum þennan leik og við erum eins og þú segir að einbeita okkur að leiknum. Við viljum sem minnst vera að einbeita okkur að Tryggva. En auðvitað kemur það til greina, hann er einn af hópnum en það kemur bara í ljós þegar við mætum í leikinn," sagði Magnús í samtali við Hjört Júlíus Hjartarson. Með sigri ÍBV í kvöld opnast titilbaráttan í deildinni upp á gátt. FH-ingar hafa fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar á KR en ÍBV yrði fimm stigum á eftir FH í þriðja sæti með sigri. ÍBV og FH mætast svo aftur í næstsíðustu umferðinni í Eyjum. Leikur FH og ÍBV er í beinni útsendingu á Stöð2 Sport. Leikurinn sem fram fer í Kaplakrika hefst klukkan 18.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Fleiri fréttir Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Stjarnan - Víkingur 1-3 | Toppliðið áfram í toppmálum Rodri ekki meira með KA í ár Uppgjörið: KR - Valur 3-1 | KR-ingar aftur á sigurbraut Öll mörkin úr Bestu deildinni: Sjáðu meistaraverk Jankó og endurkomu FH „Ætla að vona að við lærum af þessum leik“ Bæði lið í svörtu og rauðu: „Þetta er fáránlegt, við sjáum ekkert hver er hvað“ Þjálfari ÍBV vill VAR á Íslandi eftir „ólöglegt“ mark Guðni eftir sigur FH: „Gáfumst aldrei upp“ Væri alveg til í að taka markið á mig Uppgjörið: Víkingur R. - Valur 0-1 | Nadía með sigurmark gegn sínu gamla félagi Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 0-1 | Sterkur Stjörnusigur í Laugardal Uppgjörið: Breiðablik - FH 2-3 | Veisla í Kópavogi „Þetta er frá meistara Jankó” Uppgjörið: Fram - Þór/KA 3-2 | Sendu norðankonur á botninn Haukar ósigraðir á toppnum Uppgjörið: ÍBV - Grindavík/Njarðvík 1-1 | Dramatískt jöfnunarmark í uppbótartíma Landsliðskona á von á sínu fyrsta barni Versta byrjun í sögu FH Stjarnan selur miða til styrktar Ingvari Fylkir á toppinn og 16 ára í stuði Foreldrar megi anda djúpt ofan í maga Sjáðu öll mörkin úr Bestu: Markaveislur í Víkinni og Kópavogi Uppgjörið: Breiðablik - KR 6-3 | Kennslustund í Kópavogi Sjá meira