Sport

Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“

Sindri Sverrisson skrifar
Það andaði köldu á milli Xinyu Wang og Tamara Korpatsch á tennisvellinum í París í dag.
Það andaði köldu á milli Xinyu Wang og Tamara Korpatsch á tennisvellinum í París í dag. Getty/Shi Tang

Það var dramatískt andrúmsloft á Opna franska risamótinu í tennis í dag þegar hin þýska Tamara Korpatsch neitaði að taka í hönd Wang Xinyu eftir að sú kínverska hafði sakað Korpatsch um óheiðarleika.

Korpatsch endaði á að vinna leik þeirra í þremur settum (6-2, 2-6, 6-3) og komast í þriðju umferð mótsins. Eftir leikinn áttu þær Wang hins vegar í hvössum orðaskiptum og tókust ekki í hendur eins og hefð er fyrir á tennisvellinum.

Deilan sneri að því að þegar Korpatsch skoraði sigurstig sitt í fyrsta setti þá taldi Wang að dómarinn hefði gert mistök og að boltinn hefði ekki lent utan endalínunnar. Wang fór yfir á vallarhluta Korpatsch til að kanna málið og fékk áminningu fyrir óíþróttamannslega hegðun en hún virtist sannfærð um að boltinn hefði ekki farið út fyrir línuna.

Það andaði enn köldu á milli þeirra tveggja þegar leiknum lauk, eins og sjá má á myndböndum.

„Ég vildi ekki taka í höndina á henni vegna þess að mér fannst hún ósanngjörn. Hún var ósanngjörn með því að koma yfir á mína hlið, og ég er ekki ósanngjarn spilari,“ sagði Korpatsch samkvæmt BBC.

Á opna franska mótinu, öfugt við hin þrjú risamótin, er ekki notast við tölvutækni til að meta hvort bolti hafi farið út fyrir línu heldur er hægt að sjá förin í leirnum sem spilað er á.

„Við tókumst ekki í hendur því hún var ósátt varðandi boltaförin. Ég gat ekki sagst ætla að gefa henni stigið. Ég er frekar hissa því við höfum átt gott samband, við erum engir óvinir,“ sagði Korpatsch.

„Ég held að hún hafi sagt eitthvað um að henni fyndist ég óheiðarleg eða eitthvað þannig en ég veit ekki hvernig það ætti að vera. Við vorum með einn besta dómarann á vellinum og ég veit í alvörunni ekki hvernig ég ætti að svindla. Það er fjöldi myndavéla á vellinum og það sést allt þar. Að mínu mati væri til skammar að svindla svona,“ sagði Korpatsch sem mætir Elinu Svitolina í næstu umferð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×