Erlent

Hollande er óvinsælasti forsetinn í sögu Frakklands

Þrátt fyrir að Francois Hollande forseti Frakklands hafi aðeins gengt embætti sínu í 100 daga hefur hann náð því að vera óvinsælasti forseti landsins frá upphafi.

Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun sem Bloomberg fréttaveitan segir frá. Þar kemur fram að aðeins 50% Frakka styðja Hollande sem forseta og hefur hann þar með slegið Jacques Chirac við hvað þetta varðar en sá mældist lægst með 54% stuðing landsmanna sinna árið 2007.

Það er einkum óþolinmæði Frakka gagnvart hinni langvarandi kreppu sem ríkir í landinu sem veldur óvinsældum Hollande.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×