Erlent

Reknir af Ólympíuleikum fatlaðra

mynd/AFP
Þremur Jórdönum sem áttu að keppa í kraftlyftingum á Ólympíuleikum fatlaðra í Lundúnum í næstu viku hefur verið meinuð þátttaka vegna meintra kynferðisafbrota. Tveir mannanna eru grunaður um að hafa brotið kynferðislega gegn börnum.

Talið er að brotin hafi átt sér stað fyrr í sumar eða á tímabilinu 16. og 20. ágúst.

Mennirnir voru við þjálfum í Antrim æfingarbúðunum í Lundúnum þegar þeim var gert að yfirgefa landið. Dómstóll í Jórdaníu metur nú kröfu yfirvalda hvort að tryggingar verði krafist fyrir lausn mannanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×