Leikmenn í Færeyjum fá greitt undir borðið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 24. ágúst 2012 08:00 Jens Martin Knudsen. Mynd/Nordic Photos/Getty
Færeyskir knattspyrnumenn fá í mörgum tilfellum laun sín greidd undir borðið og greiða því ekki skatt af tekjum sínum. Þetta kemur fram í nýútkominni ævisögu færeyska markvarðarins Jens Martins Knudsen. Knudsen, sem öðlaðist heimsfrægð fyrir að skarta hvítri húfu á knattspyrnuvellinum og spilaði um tíma með Leiftri frá Ólafsfirði, segir í samtali við færeyska ríkissjónvarpið að vandamálið hafi hafist þegar færeysk félög fengju auknar tekjur úr sjóðum Evrópska knattspyrnusambandsins, UEFA. Í fréttinni kemur fram að bestu leikmennirnir í færeyska boltanum þéni um 30-40 þúsund danskar krónur á mánuði eða sem nemur um 600-800 þúsund íslenskum krónum.Hefur skaðleg áhrif á landslið Færeyinga Knudsen heldur því fram að færeyska knattspyrnulandsliðið beri skaða af því að leikmenn félagsliðanna fái í flestum tilfellum greitt undir borðið. Það helgist af því að leikmennirnir uppskeri sambærilegar tekjur og þær sem þeir gætu fengið í dönsku úrvalsdeildinni þar sem þeir þyrftu að greiða skatt af tekjum sínum. Leikmennirnir kjósi því að spila knattspyrnu í heimalandinu þar sem þeir geta ennfremur unnið ásamt því að iðka knattspyrnu. Þeir fari því ekki utan, þrói sinn leik og bæti sig sem leikmenn. Forseti færeyska knattspyrnusambandsins segir í samtali við færeyska ríkissjónvarpið að sambandið vinni að því ásamt skattayfirvöldum að leysa vandann sem til staðar sé.
Fótbolti Mest lesið Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Enski boltinn Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska Enski boltinn Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Enski boltinn Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Fótbolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Íslenski boltinn Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Enski boltinn Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Enski boltinn Harkalegur árekstur hjá Verstappen á heimaslóðum Formúla 1 Fleiri fréttir Níu mínútur komnar fram yfir venjulegan leiktíma þegar Szoboszlai jafnaði Liðsfélagi Hákonar á leiðinni til City ÍA - FH | Heldur sigurganga Skagamanna áfram eða nær FH vopnum á ný? Keflavík - ÍBV | Heimamenn vilja halda sér í efri hlutanum KA - KR | Hvað gerir Eiður Smári í nýju starfi fyrir norðan? Stjarnan - Þór | Nýir menn við stjórnvölinn hjá Stjörnunni Ísak skoraði og klúðraði víti í íslenskum nýliðaslag Brynjólfur hélt áfram að skora en allt hrundi á hinum endanum Algjört hrun í fyrsta leik hjá Aston Villa Thelma gaf stoðsendingu í hefndarsigri Endurkomusigur hjá City í fyrsta leik Watkins utan hóps en Emery vill ekki tjá sig Brynjar og Daníel byrja tímabilið í brekku Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska „Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“ KSÍ og Norðurlöndin lýsa yfir vantrausti á Infantino Messi skoraði en Miami heldur áfram að tapa Gamli Primark-starfsmaðurinn sem var nálægt því að skemma fyrir Mourinho Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Hinrik kominn á blað með nýja liðinu og okkar menn í Tyrklandi fögnuðu sigrum Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Brentford tók Tottenham í karphúsið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar Andri heldur áfram að skora fyrir Blackburn Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Sjá meira