Erlent

Tveir ungir piltar drukknuðu við Skotland

Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. mynd/AFP
Tveir ungir piltar, þriggja og fimm ára, létust eftir að kanó sem þeir voru á fór á hvolf undan norðvestur strönd Skotlands í gærkvöld.

Þeir voru á siglingu ásamt fjölskyldumeðlimum sínum og er manns á fertugsaldri nú leitað.

Piltunum var bjargað úr sjónum ásamt fimm ára gamalli stúlku og voru þau flutt á sjúkrahús. Stúlkan er sögð vera í lífshættu.

Samkvæmt frétt breska tímaritsins Telegraph um málið voru hvorki börnin né forráðamenn þeirra í björgunarvestum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×