Erlent

Náði í 32 lög af netinu og þarf að greiða 82 milljónir

Joel Tenenbaum
Joel Tenenbaum mynd/AP
Dómstólar í Bandaríkjunum hafa hafnað kröfu Joels Tenenbaum um að mál hans verði tekið fyrir á ný.

Árið 2007 var Joel fundinn sekur um að hafa brotið lög um hugverkavernd þegar hann halaði þrjátíu og einu lagi niður af veraldarvefnum.

Kröfu Joels var hafnað og því stendur hinn upphaflega dómur stendur. Joel þarf því að greiða 675 þúsund dollara í skaðabætur til útgáfufyrirtækja í Bandaríkjunum.

Upphæðin nemur tæpum 82 milljónum íslenskra króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×