Erlent

Hawking tekur þátt í setningarhátíð Ólympíumóts fatlaðra

Stephen Hawking.
Stephen Hawking.
Breski eðlisfræðingurinn Stephen Hawking mun leika stórt hlutverk í setningarathöfn Ólympíumóts fatlaðra í Lundúnum í dag. Um áttatíu þúsund manns munu fylgjast með Hawking.

Skipuleggjendur athafnarinnar segja að Hawking muni ræða um viljastyrk og þau ímynduðu takmörk sem manneskjan telur sig bundin. Meginstef athafnarinnar er einmitt sú hugmynd að ekkert er ómögulegt.

Hawking, sem er einn þekktasti vísindamaður okkar tíma, þjáist sjálfur af taugahrörnunarsjúkdómi og er hann bundinn við hjólastól.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×